skólinn byrjar á morgun. loksins. er orðin mjög spennt. það hefur gengið ágætlega að selja gömlu skólabækurnar mínar og það lítur út fyrir að ég þurfi ekki margar fyrir þessa önn. hjúkket. en núna er ég komin í annan skóla. skólann sem ég ætlaði mér aldrei að fara í. aldrei að segja aldrei.
september er loksins að koma. auðvitað bestasti mánuðurinn. ágúst og september eru uppáhaldsmánuðirnir mínir. þá byrjar sumarið að hverfa hægt og rólega og haustið mætir í staðinn. þá er allt eitthvað svo ferskt og fallegt. svo á ég líka afmæli en það er algjört aukaatriði...ég var að vinna fjórar vaktir í þessari viku og þarf að vinna fimm vaktir í næstu. ég þarf að vinna á afmælisdaginn minn. ég geri það aldrei. ég fæ engan til að vinna fyrir mig. grátur.
núna erum við á fullu að skoða mögulega staði fyrir næsta sumarfrí. það er reyndar bara eitt land sem kemur til greina. ég hef aldrei farið þangað en mig hefur alltaf dreymt um það. uppáhaldsknattspyrnumaðurinn minn er þaðan. við ætlum að leigja hús og vonandi vill einhver koma með okkur. það yrði bæði skemmtilegra og ódýrara. reyndar kostar þetta ekkert svívirðilega mikið. ef við fáum 1-2 fjölskyldur með okkur þá myndi þetta kosta miklu minna en hótelgisting. sjáum til hvað verður.
ef þið eigið bækur eftir/um ástu sigurðardóttur og þið viljið selja þær þá er ég áhugasamur kaupandi.
kolla...sem hlakkar til að verða þrítug
sunnudagur, ágúst 31, 2008
miðvikudagur, ágúst 27, 2008
silver
já, ef einhver hefði boðið okkur silfrið fyrirfram, þá hefðum við öll þegið það með þökkum. frábært hjá strákunum.
ég er að safna orku. orku til að semja bréf til frönsku miðasölunnar sem seldi okkur miðana á queentónleikana. eftir að ég keypti miðana þá fékk ég sent bréf þar sem ég var beðin um að senda ljósrit af vegabréfinu mínu og kreditkortinu, ásamt staðfestingu á heimilisfangi svo þeir gætu SENT MIÐANA HEIM TIL MÍN. ég fékk vinkonu mína í parís til að hringja í þá til að vera viss um að þetta væri ekki eitthvað fúsk og það reyndist svo allt vera í lagi. ég sendi þeim þá þessar upplýsingar í tölvupósti um daginn og var að fá svar í gær. þeir segja að það sé enginn tími núna til að senda þessa miða til mín! halló! hvenær tók það póstinn meira en mánuð að fara frá frakklandi til íslands??????? þeir vilja að ég sæki miðana í einhverja tónlistarverslun í parís. sjitt, hvað ég varð reið. ég er ennþá reið. ég ákvað í gær að ég myndi bara senda þeim bréf til baka og segja að ég sætti mig ekki við þetta og heimta að fá miðana senda. það er verið að hafa mann að fífli. svona eins og hjá kastljósi.
(tók smá pásu. er búin að senda bréfið. komst í ham þegar ég skrifaði um þetta. kannski fáið þið framhald í næstu færslu?)
ég vil taka það fram að það eru tvær umferðir búnar í enska boltanum og ég er ekki ennþá farin að væla um áskrift. já, hver hefði nú trúað því?
ég setti nokkur af mínum uppáhaldslögum með dave matthews band á fóninn. það er aðallega til að minnast leroi, saxafónleikara bandsins. hann dó 19. ágúst. rip. svo fyrir áhugasama þá getið þið farið á youtube og slegið inn leitarorðið bossablossi. þá getið þið séð nokkur myndbönd sem ég hef tekið á tónleikum með dave matthews band, dave matthews, evu dahlgren og audioslave. ef ég hefði ekki týnt minniskortinu mínu í sumar þá hefðuð þið líka getað séð myndbönd frá radiohead (sem var ógeeeeðslega töff!), neil young, duffy og kings of leon...grááááááááááátuuuuuuuuuur:(
ætla að fá mér trópí.
kolla...swing

fimmtudagur, ágúst 21, 2008
í dag er fæðingardagur ömmu kollu. hún hefði orðið 67 ára. hún dó árið 2002 úr krabbameini. ekki gömul. ég sakna hennar oft. ég hugsa oft til hennar þegar ég hlusta á morgunútvarpið á rás 2. það minnir mig á þegar ég heimsótti hana þegar hún var dagmamma. skrítið.
hérna er rosa flott mynd af ömmu og afa, sem var tekin 1959. með þeim er jói, bróðir mömmu, en mamma fæddist svo ári síðar.
kolla...carlsen
hérna er rosa flott mynd af ömmu og afa, sem var tekin 1959. með þeim er jói, bróðir mömmu, en mamma fæddist svo ári síðar.kolla...carlsen
miðvikudagur, ágúst 20, 2008
semi semi
"þetta er bara one step up the mountain", eins og óli sagði. er til betri leið til að vakna almennilega á morgnana? er hægt að biðja íslenskan markmann um betri markvörslu? er hægt að vera oftar manni færri inn á vellinum í einum leik? er ekki alveg dásamlegt að vera komin í undanúrslit á ól?
ég er með kenningu um af hverju björgvin er búinn að verja svona vel. þessa kenning kom sko upp eftir fyrsta leikinn gegn rússum. hversu meira sænskt getur eftirnafnið hans verið? Gustavsson. Ef það stendur Gustavsson á markmannstreyju þá er ekki annað hægt en að vera góður í marki!
nóg að gera í dag. best að koma einhverju í verk. og áfram ísland.
kolla...bíður bara og bíður

þriðjudagur, ágúst 19, 2008
lottó
mikið var ég leið þegar ég vann ekki lottóvinninginn um helgina. en mikið var ég ánægð þegar ég sá að fimm manna fjölskylda frá tælandi hafði hreppt vinninginn (minn). ég var mest leið yfir því að geta ekki boðið bjóru og ísu til manchester í október:/ en til lukku tælendingar.
laugardagur, ágúst 16, 2008
ári síðar
núna sitjum við steinsen upp í sófa. soldið þreyttar en ekki uppgefnar. fyrir nákvæmlega ári síðan sátum við í sama sófanum með nokkra gesti í heimsókn. ástæðan var sú að steinsen var komin með gat á belginn sinn og hríðir í kjölfarið. gestirnir voru pabbarnir, mamma og gunnhildur. ég nuddaði bakið á steinsen og gestirnir settu saman barnarúmið og skiptiborðið. stuttu áður höfðum við steinsen verið inni í herberginu okkar að setja upp hillu þegar steinsen var farin að skreppa allt of oft á klósettið (að mínu mati). á meðan þurfti ég að halda hillunni uppi og var orðin nett pirruð á þessu eilífa pissustandi. hún vildi hins vegar ekki hringja niður á fæðingardeild fyrr en ég talaði hana aðeins til, sem endaði með því að við fórum í heimsókn til þeirra. þá fengum við að vita að gat var komið á belginn, en við vorum sendar aftur heim til að bíða þar. á leiðinni heim komum við við í rekstrarvörum til að kaupa stórar konubleyjur. í miðri búðinni missti steinsen vatnið. svona eins og í bíómyndunum, nema í þeim gerist það yfirleitt á veitingastöðum. það var frekar skrautlegt verð ég að segja. aldrei fæ ég leið á að segja þessa sögu. hálfum sólarhring síðar kom litli pjakkurinn okkar í heiminn. gleymi þessu aldrei:)
reynir björn verður eins árs á morgun. til hamingju með afmælið elsku litla ástin mín...hættu svo að skalla mömmu þína.
kolla...stolt mamma

föstudagur, ágúst 15, 2008
biðin endalausa
það er nú aldeilis búið að halda okkur og okkar fólki límdum fyrir framan skjáinn á hverju kvöldi síðustu viku. en aldrei sýna þeir viðtalið. þetta hefur orðið að skemmtilegum brandara á mínu heimili. ég held samt að þetta sé brella hjá þeim. með því að gera þetta, þ.e. lofa okkur sýningardegi (tvisvar sinnum) og svíkja það, þá tryggja þeir sér alltaf mikið áhorf og koma vel út hjá gallup. það getur varla verið að við séum eina viðtalið sem er í bið. þau hljóta að vera nokkur og út frá þeim bíður svo fjöldi manns eftir viðtalinu sínu, sem þýðir ENN meira áhorf. svo í gær vorum við bara pollrólegar yfir þessu og skelltum okkur á völlinn og einhvern tímann í seinni hálfleik mundi ég eftir þessu. við vissum samt að ef viðtalið kæmi þá myndi væntanlega einhver láta okkur vita. bara fyndið:):)
rb á afmæli á sunnudaginn. við ætlum að halda upp á það á morgun hérna heima og svo verða pabbarnir með sína veislu á sunnudaginn. undirbúningurinn er hafinn og mun standa yfir fram á síðustu stundu. mér var treyst fyrir því að klára heimilið í dag og er það mikill heiður. ég efast samt um að steinsen verði róleg í vinnunni í dag þar sem henni finnst vera fullmikið eftir ógert. ég er hins vegar mjög róleg yfir þessu og er búin að reyna að róa hana aðeins niður. kannski er þetta svona "first-baby´s-first-birthday" syndrome? veit ekki. ég finn alla vega ekki fyrir því.
ég er alveg í skýjunum. mér líður eins og ég hafi unnið lottóvinning. ég er nefnilega skráð í núið, sem ég btw skráði mig ekki í, og ég vann! verðlaunin voru þessi: ef ég kaupi ásetningu gelnagla þá fylgir brúnkumeðferð frítt með!!!! OMG!!!! ætli ég geti nýtt þetta fyrir næstu árshátíð? ég meina, ég verð að vera nógu fín fyrir 30.000 króna kjólinn sem ég var að kaupa mér...hahahaha:) delete.
annars er komin smá skólatilhlökkun í mig. er mjög spennt fyrir því að læra á gítar hjá kennara, ekki bara sjálf. það verður líka gaman að komast aftur í gömlu rútínuna. maður getur fengið leið á öllu.
kolla...one, two, three

mánudagur, ágúst 11, 2008
stolt fjölskylda
þetta var náttúrlega geðveikur dagur og reyndar geðveik nótt líka.
atriðið okkar heppnaðist mjög vel, þótt tónlistin hefði mátt vera háværari. punktur fyrir næstu göngu. ef. veðrið var líka fullkomið. það er alltaf gaman að fara á gay pride en það er margfalt skemmtilegra að taka þátt. ég var reyndar í smá stressi í fyrri hlutanum en náði svo að njóta göngunnar betur í seinni hlutanum. á arnarhóli fékk ég svo vægt spennufall. þreytt eftir síðustu daga, mikið stress síðasta klukkutímann fyrir gönguna, svefnlitla nótt og hafði ekkert borðað. ég var á mörkunum að sofna í brekkunni og ég er ekki að ýkja. en það var bara allt í lagi og alveg þess virði.
við fórum svo með orra og þorsteini á rossopomodoro áður en við fórum heim. þá var ég komin á það stig að þurfa tannstöngla til að halda augnlokunum uppi. ég þorði ekki að leggja mig, því þá hefði ég ekki vaknað aftur það kvöldið. eina ráðið var því að fá sér bjór og heppnaðist sú aðferð mjög vel. bára kom svo og sótti mig og við rukum í partý til bjóru og ísu. þar vorum við í góðum fíling áður en við skelltum okkur aftur á organ. staðurinn var reyndar tómur og tónlistin ekki að gera sig en úti sat hópur af fjörugum konum sem við þekktum og við tylltum okkur hjá þeim og skemmtum okkur konunglega til kl. 3. þaðan fórum við svo yfir á english pub þar sem við sáum seinni hálfleikinn af rússaleiknum á ól. staðurinn var pakkaður og stemmningin geðveik, mikil innlifun í mannskapnum. ótrúlega mikið fjör. að lokum fengum við okkur nonna og ég var komin heim klukkan 6. þreytt? nei aldrei. föstudagsjammið var mjög skemmtilegt en laugardagsjammið var svo miklu miklu miklu skemmtilegra! takk takk takk stelpur, jú rokk:)
ég er með teljara hérna á síðunni sem sýnir mér mjög fjölbreytta tölfræði. hann sýnir mér t.d. í hvaða landi lesendur síðunnar eru staddir þegar þeir fara inn á hana. fólk er flest allt á íslandi, nema um daginn þegar hún var lesin í danmörku og komst ég að því hver það var en núna er einhver að lesa síðuna frá bandaríkjunum og ég verð að viðurkenna að ég er að DEYJA ÚR FORVITNI! plís þú, viltu segja mér hver þú ert??
svo væri gaman að fá smá gay pride komment frá ykkur. hvernig var? sáuði atriðið okkar? bara eitthvað:)
kolla...sem hefði viljað hafa 9. ágúst helmingi lengri.

laugardagur, ágúst 09, 2008
til hamingju með daginn
það var nú ákveðið kodak móment hérna heima í gær. þetta var eins og á aðfangadagskvöldi klukkan 18 þegar beðið er eftir að klukkurnar hringi inn jólin. svo bara gerðist ekkert. og allir alveg ha. bara fyndið.
við steinsen áttum sambandsafmæli í gær. fyrir nákvæmlega fimm árum á föstudegi fyrir gay pride byrjuðum við saman og var ákveðið að halda upp á það með vinum okkar í partíi í húsi. þetta hús var aðeins tveimur húsnúmerum frá húsinu þar sem við vorum í partíi fyrir fimm árum síðan, s.s. heima hjá pabba. skildist þetta?
núna þurfum við að drífa okkur niður í bæ, á skærgræna hipparúgbrauðsbílnum sem er núna í bílageymslunni hennar mömmu. vonandi er hann þar ennþá. við steinsen höfum fengið martraðir sem snúast um það að allt sé horfið úr honum eða bráðnað. believe me, it would be a nightmare!
jæja, best að skella sér í gönguna. hef heyrt að það eigi að vera fjölmennt fjölskylduatriði. samkynhneigðar fjölskyldur. öööööö. vil ekki missa af því.
kolla...sem mun hvílast vel á morgun

miðvikudagur, ágúst 06, 2008
"what´s the point of this song, or even singing"
það er nú naumast.
gay pride brjálæðið byrjað. aðaldagurinn er eftir 2 daga og undirbúningurinn að nálgast hámark. fyrir mér náði hann hámarki í dag þegar ég keyrði frá hveragerði til rvíkur í skærgrænum krúttlegum hipparúgbrauðsbíl með fullan frysti af íspinnum. spes. það var sérstaklega spennandi að sjá hvort hann drifi upp kambana. hann er frá árinu 1974 og við skulum orða það þannig að hann er ekki með vökvastýri...

ég er s.s. að undirbúa fjölskylduatriði í gleðigöngunni með guðrúnu óskars en við fáum alveg ótrúlega mikla hjálp frá mörgu frábæru fólki sem hefur heldur betur verið betra en ekkert. í gær var síðasti fundur fyrir atriðið en þátttökufjöldinn er kominn yfir 60 manns sem er alveg geðveikt. mínar björtustu vonir voru um 40 manns og ég var sko blindbull þegar ég gerðist svo bjartsýn;) í gær fór ég svo í tvö viðtöl á mogganum, annað var stutt og birtist í morgun og hitt var lengra og birtist einhvern tímann á næstu dögum. fréttablaðið bað um viðtal en þar sem það tengist tísku þá var ég ekki lengi að segja að ég væri með hlaupabóluna og sendi þá á guðrúnu. svo er það kastljósið. sjitt. ég var búin að gleyma því. það verður væntanlega á morgun eða hinn.
orri og þorsteinn eru í úklöndum og þess vegna hef ég verið heima með rb síðustu viku. það er yndislegt. verst að það er bara vika. verst að ég hef ekki getað einbeitt mér 100% að honum síðustu daga út af þessum undirbúningi. en hann er svo duglegur að dunda sér og það hjálpar mér mikið. yndislegur strákur, sem verður eins árs eftir 11 daga. á föstudaginn næ ég svo að klára að útrétta allt þegar hann fer aftur til pabba síns.
ég var ekki búin að segja ykkur frá frakklandsferðinni. ég er að fara til frakklands í lok september þar sem ég ætla að horfa á íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tryggja sig inn á sitt fyrsta stórmót. í leiðinni förum við nokkrar vinkonurnar á tónleika með queen. ha, er freddy mercury dáinn? þetta verða samt þrusu tónleikar! svo verður þetta náttúrlega bara skemmtileg ferð fyrir utan bolta og leika. þessar lebbur klikka aldrei;)
fh-aston villa eftir viku. það verður gaman að sjá. ég spái 1-1.
er á minni fyrstu kvöldvakt síðan um miðjan júní og mér finnst eins og ég hafi verið hérna síðast um jólin. var m.a.s. búin að gleyma lykilorðinu á hurðinni frammi. það er því greinilegt að ég hvíldist vel í þessu fríi og finnst bara meira en allt í lagi að vera byrjuð aftur.
kolla...sem hefur ekki alveg jafnað sig ennþá á áfallinu með minniskortin

þriðjudagur, ágúst 05, 2008
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)