gay pride brjálæðið byrjað. aðaldagurinn er eftir 2 daga og undirbúningurinn að nálgast hámark. fyrir mér náði hann hámarki í dag þegar ég keyrði frá hveragerði til rvíkur í skærgrænum krúttlegum hipparúgbrauðsbíl með fullan frysti af íspinnum. spes. það var sérstaklega spennandi að sjá hvort hann drifi upp kambana. hann er frá árinu 1974 og við skulum orða það þannig að hann er ekki með vökvastýri...

ég er s.s. að undirbúa fjölskylduatriði í gleðigöngunni með guðrúnu óskars en við fáum alveg ótrúlega mikla hjálp frá mörgu frábæru fólki sem hefur heldur betur verið betra en ekkert. í gær var síðasti fundur fyrir atriðið en þátttökufjöldinn er kominn yfir 60 manns sem er alveg geðveikt. mínar björtustu vonir voru um 40 manns og ég var sko blindbull þegar ég gerðist svo bjartsýn;) í gær fór ég svo í tvö viðtöl á mogganum, annað var stutt og birtist í morgun og hitt var lengra og birtist einhvern tímann á næstu dögum. fréttablaðið bað um viðtal en þar sem það tengist tísku þá var ég ekki lengi að segja að ég væri með hlaupabóluna og sendi þá á guðrúnu. svo er það kastljósið. sjitt. ég var búin að gleyma því. það verður væntanlega á morgun eða hinn.
orri og þorsteinn eru í úklöndum og þess vegna hef ég verið heima með rb síðustu viku. það er yndislegt. verst að það er bara vika. verst að ég hef ekki getað einbeitt mér 100% að honum síðustu daga út af þessum undirbúningi. en hann er svo duglegur að dunda sér og það hjálpar mér mikið. yndislegur strákur, sem verður eins árs eftir 11 daga. á föstudaginn næ ég svo að klára að útrétta allt þegar hann fer aftur til pabba síns.
ég var ekki búin að segja ykkur frá frakklandsferðinni. ég er að fara til frakklands í lok september þar sem ég ætla að horfa á íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tryggja sig inn á sitt fyrsta stórmót. í leiðinni förum við nokkrar vinkonurnar á tónleika með queen. ha, er freddy mercury dáinn? þetta verða samt þrusu tónleikar! svo verður þetta náttúrlega bara skemmtileg ferð fyrir utan bolta og leika. þessar lebbur klikka aldrei;)
fh-aston villa eftir viku. það verður gaman að sjá. ég spái 1-1.
er á minni fyrstu kvöldvakt síðan um miðjan júní og mér finnst eins og ég hafi verið hérna síðast um jólin. var m.a.s. búin að gleyma lykilorðinu á hurðinni frammi. það er því greinilegt að ég hvíldist vel í þessu fríi og finnst bara meira en allt í lagi að vera byrjuð aftur.
kolla...sem hefur ekki alveg jafnað sig ennþá á áfallinu með minniskortin



Engin ummæli:
Skrifa ummæli