sunnudagur, ágúst 31, 2008

bráðum september

skólinn byrjar á morgun. loksins. er orðin mjög spennt. það hefur gengið ágætlega að selja gömlu skólabækurnar mínar og það lítur út fyrir að ég þurfi ekki margar fyrir þessa önn. hjúkket. en núna er ég komin í annan skóla. skólann sem ég ætlaði mér aldrei að fara í. aldrei að segja aldrei.

september er loksins að koma. auðvitað bestasti mánuðurinn. ágúst og september eru uppáhaldsmánuðirnir mínir. þá byrjar sumarið að hverfa hægt og rólega og haustið mætir í staðinn. þá er allt eitthvað svo ferskt og fallegt. svo á ég líka afmæli en það er algjört aukaatriði...ég var að vinna fjórar vaktir í þessari viku og þarf að vinna fimm vaktir í næstu. ég þarf að vinna á afmælisdaginn minn. ég geri það aldrei. ég fæ engan til að vinna fyrir mig. grátur.

núna erum við á fullu að skoða mögulega staði fyrir næsta sumarfrí. það er reyndar bara eitt land sem kemur til greina. ég hef aldrei farið þangað en mig hefur alltaf dreymt um það. uppáhaldsknattspyrnumaðurinn minn er þaðan. við ætlum að leigja hús og vonandi vill einhver koma með okkur. það yrði bæði skemmtilegra og ódýrara. reyndar kostar þetta ekkert svívirðilega mikið. ef við fáum 1-2 fjölskyldur með okkur þá myndi þetta kosta miklu minna en hótelgisting. sjáum til hvað verður.

ef þið eigið bækur eftir/um ástu sigurðardóttur og þið viljið selja þær þá er ég áhugasamur kaupandi.

kolla...sem hlakkar til að verða þrítug

Engin ummæli: