miðvikudagur, ágúst 27, 2008

silver

já, ef einhver hefði boðið okkur silfrið fyrirfram, þá hefðum við öll þegið það með þökkum. frábært hjá strákunum.

ég er að safna orku. orku til að semja bréf til frönsku miðasölunnar sem seldi okkur miðana á queentónleikana. eftir að ég keypti miðana þá fékk ég sent bréf þar sem ég var beðin um að senda ljósrit af vegabréfinu mínu og kreditkortinu, ásamt staðfestingu á heimilisfangi svo þeir gætu SENT MIÐANA HEIM TIL MÍN. ég fékk vinkonu mína í parís til að hringja í þá til að vera viss um að þetta væri ekki eitthvað fúsk og það reyndist svo allt vera í lagi. ég sendi þeim þá þessar upplýsingar í tölvupósti um daginn og var að fá svar í gær. þeir segja að það sé enginn tími núna til að senda þessa miða til mín! halló! hvenær tók það póstinn meira en mánuð að fara frá frakklandi til íslands??????? þeir vilja að ég sæki miðana í einhverja tónlistarverslun í parís. sjitt, hvað ég varð reið. ég er ennþá reið. ég ákvað í gær að ég myndi bara senda þeim bréf til baka og segja að ég sætti mig ekki við þetta og heimta að fá miðana senda. það er verið að hafa mann að fífli. svona eins og hjá kastljósi.

(tók smá pásu. er búin að senda bréfið. komst í ham þegar ég skrifaði um þetta. kannski fáið þið framhald í næstu færslu?)

ég vil taka það fram að það eru tvær umferðir búnar í enska boltanum og ég er ekki ennþá farin að væla um áskrift. já, hver hefði nú trúað því?

ég setti nokkur af mínum uppáhaldslögum með dave matthews band á fóninn. það er aðallega til að minnast leroi, saxafónleikara bandsins. hann dó 19. ágúst. rip. svo fyrir áhugasama þá getið þið farið á youtube og slegið inn leitarorðið bossablossi. þá getið þið séð nokkur myndbönd sem ég hef tekið á tónleikum með dave matthews band, dave matthews, evu dahlgren og audioslave. ef ég hefði ekki týnt minniskortinu mínu í sumar þá hefðuð þið líka getað séð myndbönd frá radiohead (sem var ógeeeeðslega töff!), neil young, duffy og kings of leon...grááááááááááátuuuuuuuuuur:(

ætla að fá mér trópí.

kolla...swing

Engin ummæli: