Planið er samt að mæta í skólann alla þessa viku til að læra. Á Vesturlandsveginum í morgun varð ég vör við nokkra trukka og steig ósjálfrátt fastar á bensíngjöfina..."plís ekki loka mig inni, plís leyfið mér að fara niður Ártúnsbrekkuna áður en þið lokið henni...." Svo voru víst engin mótmæli þar í dag.
Ég lærði í 6 klst á bókasafninu í dag og fór í ca 20 pissuferðir (breytt mataræði sko:), var orðin pínu þreytt á því! Áður en ég fór í eitt skiptið þá hafði ég setið við borðið með vinstri fótinn beygðan ofan á hægra lærið til að fá smá teygju á bakið. Ég hafði setið þannig í dágóðan tíma þegar pissið sagði til sín. Ég rölti svo loksins af stað og þegar ég var hálfnuð byrjaði allt í einu vinstri fóturinn að dofna og ég fann að ég var alveg að fá nálardofa. Ég hata nálardofa! Ég reyndi að drífa mig á klósettið áður en fóturinn sofnaði alveg...haltraði nokkur skref þangað til að ég var allt í einu stopp með risa bókahillu á hægri hönd og sex nemendur á vinstri....og auðvitað líta allir upp þegar einhver gengur framhjá:/ Það eina í stöðunni var að snúa sér á hægri fætinum í átt að bókahillunni....og passa að hreyfa ekki þann vinstri svo ég myndi nú ekki öskra þarna inni....og þykjast skoða það sem hendi var næst. Það voru landafræðibækur. Ég hafði ekki hugmynd um að það væru til svona margar landafræðibækur. Fræðandi. Einni til tveimur mínútum síðar hélt ég áfram minni leið á klósettið....og án þess að pissa í brækurnar;)

Næsta laugardag munum við halda heilt blakmót á Selfossi með Hamri og svo eru bara 3 vikur í Öldungamótið á Ísó!! Er að fylla ipodinn minn af fjölbreyttri tónlist til að spila í bílnum og ef ég á að segja alveg eins og er þá er bílferðin eiginlega mesta tilhlökkunin (fram og tilbaka heilir 12 klukkutímar...vúhú!!). Þegar heim verður komið aftur hefst svo próflesturinn fyrir alvöru en við tölum bara um það seinna....
Það eru bara 83 dagar í Hróarskeldu! Ég er á fullu að hlusta á nýja (og gamla) tónlist með böndum sem verða þarna og það eykur bara spennuna. Ég fékk slatta af diskum frá Ljósálfunum með Will Oldham og Neil Young og svo hef ég aðeins heyrt í Grinderman á netinu, en það er víst eitthvað nýtt band með Nick Cave. Lofar mjög góðu. Ég elska að kynnast góðri tónlist, nýrri og eldri, og þá sérstaklega Neil Young. Af hverju var enginn búinn að kynna hann fyrir mér áður?? Þessir tveir diskar sem ég hef hlustað á með honum eru frábærir....vá, hvað ég er orðin SPEEEEEENNTT!!
Sjitt, hvað hann er sexí!Annars er ég að spá í að skella mér á James Blunt fyrir 14.900 kr....NOOOT:)
kvk



