fimmtudagur, september 18, 2008

lesbía á leið til parísar

loksins, loksins.

skólinn er núna kominn á fullt og ég er svona nokkurn veginn komin með námskeiðin mín á hreint. ég tek 17 einingar á þessari önn, sem er rétt rúmlega fullt nám. ég er í fjórum fögum og þar af verða tvö þeirra í fjarnámi, en það kom reyndar ekki í ljós fyrr en í fyrstu vikunni. allt í lagi með það. ég ákvað þá í kjölfarið að skrá þriðja fagið í fjarnám, þótt ég væri pínu smeyk við það, þannig að ég er núna bara í einum tíma á viku. það er gítarkennsla, vúhú:) enn sem komið er hef ég verið nokkuð samviskusöm. ég hef aldrei verið með neitt sérstaklega góðan sjálfsaga og þess vegna er þetta ákveðin áskorun fyrir mig.

um daginn þurfti ég að hnerra við skrifborðið. ég sneri mér til hliðar, í áttina að veggnum og aaatsjúúú!! veggurinn varð appelsínugulur eftir paprikuna sem ég var að borða. ég segi bara guð sé lof að ég var í fjarnámi. annars hefði einhver fengið þetta í vinstra eyrað sitt. oj.

mamma á afmæli í dag. til hamingju með afmælið:) hún er ekki gömul. bara 48 ára.

það eru sex dagar í frakklandsferðina. við verðum fyrstu tvo dagana í parís. svo förum við í langa rútuferð...var ég kannski búin að segja frá þessu ferðalagi? æi, ég man ekki neitt. alla vega. það er hvort eð er bara þrennt sem skiptir máli: 1) tónleikarnir með queen 2) frakkland-ísland 3) bjórinn. við erum 9 stelpur sem ferðumst saman. það verður leikur í gangi innan hópsins frá því við mætum í keflavík á miðvikudagsmorguninn og þangað til landsleikurinn klárast. í hvert skipti sem einhver okkar segir orðin "parís" eða "lesbía" þá þarf hin seka að borga 1 evru í sektarsjóð. við gerum svo eitthvað skemmtilegt saman á laugardagskvöldinu fyrir upphæðina sem safnast saman. þetta gæti orðið mjög athyglisverður leikur..."jæja, loksins erum við lesbíurnar komnar til parísar..." við komum svo heim á sunnudegi.

jæja, best að fara að koma sér í háttinn. mín bíður klipping kl. 15 á morgun

kolla...hendrix

miðvikudagur, september 10, 2008

þriðjudagur, september 09, 2008

ekki enn orðin þrítug

ein stelpa úr skólanum á foreldra sem eru fastir í útlöndum, þar sem flugfélagið fór á hausinn. "æ æ", segir hún. "en heppin", segi ég. þau lifa drauminn minn. það væri t.d. alveg sérstaklega gaman ef þetta kæmi fyrir mig í new york.

ég átti yndislegan dag á laugardaginn. ég var reyndar að vinna nóttina áður þannig að ég fékk fyrst að sofa út. eftir að hafa vaknað í sturtunni beið mín bakkelsi og afmæliskaka frammi í eldhúsi. við hámuðum það allt í okkur áður en við brunuðum í mosó til að horfa á stelpurnar mínar landa íslandsmeistaratitlinum:) þær eru svo miklir snillingar að það hálfa væri nóg og þær áttu þennan titil svo innilega skilinn. við eyddum svo restinni af deginum í bústaðnum hjá gunnhildi, einari og litlu ljósálfunum mínum. svo fór rb til pabbanna og við fórum út að borða með gunnhildi, einari, pabba og þóreyju á austur-indíafélaginu. geðveikt gott! síðan kíktum við með gunnhildi og einari á kaffihús þar sem við fengum stóran bjór á 550 kr!! það var eins og kreppunni væri lokið og árið 1999 væri komið aftur. en jæja. þaðan keyrðum við svo upp í mosó til að hitta fríðu og heiðu í afmælispartýi og þar sátum við og spjölluðum eitthvað fram eftir. þær fóru svo á ball en við fórum heim. æðislegur dagur. takk takk takk:)

það er enn til klósettpappír. samt gengur mér alveg rosalega vel að selja, með hjálp frá góðu fólki;) það er ekki séns að ég labbi upp á 3. hæð á eiffel turninum.
no njet nej ónei!

kolla...sem fannst alveg nógu erfitt að labba NIÐUR af 2. hæð turnsins!

mánudagur, september 08, 2008

þessi eru líka svona sniðug hahaha



þetta er samt uppáhaldið mitt...shut up drogba

sniðugt hahaha

þetta finnst mér fyndið:)

föstudagur, september 05, 2008

frædei

fyrsta vikan í skólanum er að klárast í dag. þessi önn er mjög spennandi. ef allt fer að óskum þá verður hún sú skemmtilegasta hingað til. var í dag í tíma í tjáningu og táknvísi. við vorum bara sjö í tímanum, þ.a. fimm margra barna mæður sem eru í fjarnámi. við vorum að tala um menningu barna og unglinga tengdri nýmiðlun. þessar fimm fóru hreinlega á kostum. ég náði að halda hlátrinum niðri en ekki brosinu. "stelpan mín kom heim um daginn og sagði bara: mamma, ég vil fá svona g-streng! og ég er alveg viss um að hún fær þessa hugmynd frá öllum tónlistarmyndböndunum í sjónvarpinu og hún er bara 6 ára gömul!" "já nei, þetta hefur engin áhrif á strákinn minn, hann horfir aaaaldrei á sjónvarpið, hann er BARA í tölvunni". alveg á innsoginu;)

svo í tímanum komst ég að því að ein þeirra sá viðtalið í kastljósi. hún horfði ekki á mig. nei, hún starði. mjööög augljóst. það fannst mér líka frekar fyndið:) þið skiljið s.s. núna af hverju þessi önn verður skemmtilegust...

í dag. fyrir nákvæmlega tuttuguogníu árum síðan, var ég bumbubúi. það heitir það alla vega nú til dags. ætli það orð hafi verið til þá?

á morgun, fyrir nákvæmlega tuttuguogníu árum síðan, hættu foreldrar mínir að vera unglingar. pabbi var nítján og mamma að verða nítján. þessir blessuðu unglingar á þeim tíma. þar sem fólk var ekki eins upplýst á þessum tíma eins og í dag þá hef ég stundum pælt í því hvort mamma hafi reykt á meðgöngunni. ég á það stundum til að finna reykingalykt.

það stefnir allt í það að afmælisdeginum mínum verði eytt fyrir framan imbann að horfa á jarðarför. aftur. allt í beinni á rúv. síðast þegar ég horfði á jarðarför á rúv var þegar díana ninpressa var jörðuð. það var 6. sept 1997. þá var ég reyndar þunn. og bjó hjá pabba. og með stutt hár. en samt alveg rauðhærð. svo dó pavarotti 6.sept í fyrra.

kolla...farin í mötó

fimmtudagur, september 04, 2008

kmk

ég hef stofnað nýja bloggsíðu fyrir blakliðið mitt (kmk) og ákvað í tilefni af nýju tímabili að klára smá myndband sem ég hafði byrjað á í vor. ég setti saman myndir frá síðastliðnum árum saman við nokkra lagabúta og þetta er árangurinn (ef það hikstar hjá ykkur þá væri ekki vitlaust að leyfa því að rúlla einu sinni í gegn, án þess að horfa á það, og byrja svo upp á nýtt):



ekki gallalaust en ég nennti ekki að fínpússa það 100%.

kolla...ekki gallalaus

þriðjudagur, september 02, 2008

jæja, hvar á ég að byrja

jesús minn almáttugur! guð minn góður! jesus christ on a bike! verst að ég trúi ekki á þá.

ég talaði ekki allan tímann. þetta var bara svona "skemmtilega" klippt hjá þeim. hinum þremur í þessu viðtali fannst það bara ALLT Í LAGI. sem betur fer klipptu þeir út svarið mitt þar sem ég gleymdi því sem ég ætlaði að segja. ég var lengi með móral út af því. uppáhaldsbúturinn minn í þessu viðtali var þegar orri hélt á reyni í eldhúsinu. það var eitthvað svo fallegt. ég táraðist næstum því. en sætt.

ok, það var aðeins skárra að horfa á þetta í annað skiptið. þá talaði ég ekki eins mikið...nei djóóóók!

á fjórðu spurningunni vonaðist ég reyndar til þess að ég myndi ekki svara henni líka. en það breyttist víst ekkert á rúv plús.

jæja

getur einhver sagt mér hvað roger waters (pink floyd), nina persson(the cardigans) og sverrir stormsker (einkavinur snúlla) eiga sameiginlegt? svör óskast.

kolla...bla bla bla