núna sitjum við steinsen upp í sófa. soldið þreyttar en ekki uppgefnar. fyrir nákvæmlega ári síðan sátum við í sama sófanum með nokkra gesti í heimsókn. ástæðan var sú að steinsen var komin með gat á belginn sinn og hríðir í kjölfarið. gestirnir voru pabbarnir, mamma og gunnhildur. ég nuddaði bakið á steinsen og gestirnir settu saman barnarúmið og skiptiborðið. stuttu áður höfðum við steinsen verið inni í herberginu okkar að setja upp hillu þegar steinsen var farin að skreppa allt of oft á klósettið (að mínu mati). á meðan þurfti ég að halda hillunni uppi og var orðin nett pirruð á þessu eilífa pissustandi. hún vildi hins vegar ekki hringja niður á fæðingardeild fyrr en ég talaði hana aðeins til, sem endaði með því að við fórum í heimsókn til þeirra. þá fengum við að vita að gat var komið á belginn, en við vorum sendar aftur heim til að bíða þar. á leiðinni heim komum við við í rekstrarvörum til að kaupa stórar konubleyjur. í miðri búðinni missti steinsen vatnið. svona eins og í bíómyndunum, nema í þeim gerist það yfirleitt á veitingastöðum. það var frekar skrautlegt verð ég að segja. aldrei fæ ég leið á að segja þessa sögu. hálfum sólarhring síðar kom litli pjakkurinn okkar í heiminn. gleymi þessu aldrei:)
reynir björn verður eins árs á morgun. til hamingju með afmælið elsku litla ástin mín...hættu svo að skalla mömmu þína.
kolla...stolt mamma
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli