þriðjudagur, júlí 29, 2008

ting tings

helgin var nú bara sérdeilis prýðileg. steinsen vann aðeins hálfan föstudag svo við gætum farið frekar snemma úr bænum. stefnan var tekin á kollsá. þar hittum við pabba og co og elduðum rosa góðan mat með þeim og spjölluðum fram eftir kveldi. það væri eiginlega nær því að kalla það yfirheyrslu þar sem hún thelma litla spurði okkur steinsen spjörunum úr um það hvernig við komum út úr skápnum, hvernig við byrjuðum saman og hún m.a.s. spurði mig af hverju ég hefði hætt með gömlu kærustunni minni á sínum tíma. þetta er í ca. 10. skiptið sem hún spyr mig að því. hún er alveg frábær:)

daginn eftir upplifði ég nokkuð sem ég hef aldrei á ævinni upplifað áður, logn og hitasviti í hrútafirðinum. það getur verið að ég sé að gleyma einhverjum skiptum þar sem veðrið var gott en þau hafa þá verið mjööög fá.

eftir að hafa unnið þóreyju tvisvar í níðingi og legið aðeins í sólbaði úti á palli, þá var skundað í bæinn enda beið okkur þar stór faðmur barna. reynir björn kom frá pöbbunum og úlfhildur og grímur komu í næturheimsókn. við enduðum bara daginn í rólegheitum heima en eftir hádegisblundana á sunnudaginn var ákveðið að skreppa út í viðey. það var alveg ótrúlega ánægjuleg ferð. af hverju hefur mér alltaf fundist svona erfitt að fara þangað? en það er einfaldara en að fara í smáralindina á þorláksmessu! og þá er nú mikið sagt. þarna borðuðum við nesti og lékum okkur á rólóvellinum þangað til við tókum bátinn til baka, eða skipið eins og litlu ljósálfarnir kölluðu hann:) sunnudaginn enduðum við svo hjá orra og þorsteini í grilli þar sem farið var vandlega yfir það hvernig við skyldum bregðast við aukinni athygli í næstu viku. engin hernaðaráætlun liggur fyrir enn sem komið er. en svona að öllu gamni slepptu þá erum við með hjartað í brókunum og búast má við því að það verði þar eitthvað á næstunni. orri hefur til að mynda gefið það út að hann muni horfa á viðtalið einn einhvers staðar. verði honum að góu. þetta er nú einu sinni honum að kenna....

jæja, best að drífa sig í bæinn. ætla að hjálpa heiðu smá að flytja. síðan ætlum við á kr-fjölni í kvöld. og kannski bara golf þar á eftir?

kolla...sem var að uppgötva nýtt uppáhaldslag...set það á fóninn.

föstudagur, júlí 25, 2008

vatt a dei


við steinsen fórum í gærkvöldi á tónleikana með deimíen ræs. það var smá spenna í loftinu enda var ég áður búin að missa af tveimur tónleikum með honum. hann mætti bara einn þar sem hann sagðist í rauninni vera í sumarfríi og af því tilefni ákvað hann að spila lög sem fólk bað hann um að spila, með því að kalla úr salnum. og til að gera langa sögu stutta þá voru þetta GEÐVEIKIR tónleikar!! hann er frábær á sviði, röddin hans er æðisleg, hann spilaði á gítar og orgel og gerði það sem fólk vill heyra á tónleikum: hann bætti alltaf einhverju við lögin frá því sem þau eru á plötunum, án þess að breyta þeim, fattiði. hann breytti reyndar einu en só. svo sagði hann okkur sögurnar á bak við lögin með einstaklega hnittnum írskum húmor og stundum lá salurinn í hláturskasti. lögin tengjast mörg hver vandræðalegum augnablikum í lífi hans og þá yfirleitt samskiptum hans við hitt kynið. í lok lagsins volcano þá fjórskipti hann salnum og lét hvern hluta syngja eina rödd þar sem fjórar mismunandi raddir fléttast saman í laginu og vitiði, það var GEÐVEIKT!! þetta var sjúklega flott og ég fékk gæsahúð dauðans!! það var flott þegar james blunt lét áhorfendur syngja eitt viðlag hjá sér en þetta var svo margfalt flottara og ég efast um að ég upplifi aftur annað eins. næsta lag á eftir var líka ótrúlega flott en hann ákvað að flytja það fyrir framan míkrafóninn. sjitt, hvað það var ótrúlega töff. þá tók hann cannonball. þessi tvö lög voru topparnir á tónleikunum ásamt mínu uppáhaldslagi, elephant. ég ætla að setja þau á fóninn hérna á vinstri kantinum ásamt nokkrum í viðbót (m.a. cover af radioheadlaginu creep). þessir tónleikar fara beint í hóp minna uppáhaldstónleika. þeir voru mjög líkir dave matthews í glasgow og evu dahlgren í lundi. léttir tónleikar (en samt alveg rokk sko), spjall við áhorfendur, sögustund, húmor, góður salur og auðvitað frábær flutningur. ekki svona eins og á bob dylan. ég er nú bara farin að vorkenna honum.


við fengum heimsókn í gær. frá henni þóru. hún er kennd við kastljósið. hún kom til okkar seinni partinn ásamt tökuliðinu sínu. strákarnir komu líka og þau tóku svo viðtal við okkur öll í herberginu hans reynis. þar sátum við á gólfinu í smá indjánafíling. ég er mjög stressuð að sjá útkomuna. eiginlega frekar mikið stressuð. ég þoli ekki, eins og flestir, að sjá sjálfa mig í sjónvarpinu en núna finnst mér allt í einu öll svörin mín hafa verið alveg hryllilega glötuð. af hverju sagði ég þetta og þetta og þetta og af hverju sagði ég þetta ekki soldið meira svona?!?!?!?!?! díses, glatað ma´r. en ef þið hafið áhuga á að sjá þetta mjög svo glataða viðtal, þá verður það sýnt í gei præd vikunni, veit ekki meir.

kolla...sem fer á kollsá eftir hádegi í dag því hún meikar ekki allt þetta sviðsljós.

p.s. af hverju gátum við ekki bara sagt nei? orri? ORRI! djös ves. í eitt skiptið datt ég út. fann ekki orðið sem ég var að leita að. og myndavélin alveg ætlarðu að gubba þessu út úr þér í dag eða? svo náði ég að redda mér. en samt. díses. ORRI, þetta er allt þér að kenna. og ekki svo þykjast ekki lesa blöggið mitt... ;)

miðvikudagur, júlí 23, 2008

njálgur

loksins höfum við ákveðið að skella okkur á kollsá. planið var að vera þar alla næstu helgi en þar sem við náðum ekki að púsla púsluspilinu þá verðum við þar bara eina nótt. barnlausar. alltaf næs að fara norður. það gæti verið að við færum þangað aftur um versló en eins og staðan er í dag eru meiri líkur á að við förum í bústað til fríðu. kemur í ljós.

þessi mynd frá Kollsá er tekin nítjánhundruðsjötíuogeitthvað. ég var ekki fædd en mamma og pabbi eru lengst til hægri á myndinni. á næstu áratugum fjölgaði allsvakalega í fjölskyldunni. efast um að allir kæmust fyrir á þessari mynd.

ég hef ekki bloggað neitt um skólann síðan í vor. það er viljandi. fékk nóg. síðustu vikurnar voru ekkert sérstakar. eftir prófin útilokaði ég svo allt sem tengdist skólanum, varð að gera það. fyrst núna líður mér betur og ég er að spá í að kíkja á skólapóstinn minn, athuga hvort það leynist eitthvað þar. reyndar er ég komin í nýjan skóla. háskóla íslands. ég ætlaði aldrei að fara í þann skóla en get víst engu um það breytt núna. nema kannski hætt. en það gerir maður ekki, ekki einu sinni vitleysingur eins og ég! þótt ég sé með njálg.

það er eitthvað við sumarið.

hvernig væri að byrja að mála? er ég í stuði núna? nei.

ætla að halda áfram að læra.

kolla...sem sópaði gólfið í gær

þriðjudagur, júlí 22, 2008

ættarmóti lokið

...og það var frábært í alla staði! ef það hefði verið aðeins minni vindur á laugardaginn þá hefði það verið fullkomið. loksins tókst okkur að tjalda nýja tjaldinu okkar rétt, eftir að hafa horft á dvd-leiðbeiningarnar, fengið góða hjálp frá ingimari og fengið lánaðan hamar hjá ingu rut og einari. það tók okkur engu að síður 2 tíma að klára verkið.
stemmningin var annars ekta. kassagítar og söngur, grillmatur og bjór, spjall og hlátur og gott veður. þessi ætt er algjört eðal.

núna tekur við næsta skipulag. eftir að hafa tekið þátt í að skipuleggja ættarmótið þá tekur við undirbúningur fyrir gay pride. við erum tvær að skipuleggja fjölskylduatriði fyrir gönguna og erum við núna komnar með um 30 manns í atriðið. við stefnum samt á að tvöfalda þá tölu, vonandi náum við því. ég vil annars segja sem minnst frá atriðinu. þegar ég hef horft á gönguna þá finnst mér mesta spennan felast í því að sjá hvernig atriðin eru. þess vegna vil ég sem minnst segja og leyfa spennunni að lifa. svo er bara skyldumæting í bæinn 9. ágúst:)

þessi rigning er ekki alveg að slá í gegn. mér finnst hundleiðinlegt að borða ís í rigningu. það er allt of langt síðan ég fékk mér ís. því fyrr sem góða veðrið kemur því fyrr get ég fengið mér ís.

kolla...sem ætlar að læra inni í rigningunni í allan dag.

fimmtudagur, júlí 17, 2008

komin heim

þessi ferð var í alla staði meiriháttar. skemmtilegur félagsskapur, stuð tónleikar, gott veður o.s.frv. eina sem var neikvætt var verðlagið. nenni ekki að tala mikið um gengið en fyrir íslendinga að versla í dk er ekki eins gaman og það var áður, sérstaklega súrt að sjá bjórinn dýrari en hérna heima:/

það sem stóð upp úr á hróa voru radiohead, neil young og kings of leon. þetta voru reyndar þau bönd sem ég var fyrirfram spenntust yfir að sjá og þau stóðu sig öll frábærlega. radiohead, sem ég var að sjá í þriðja skiptið, spilaði allan nýja diskinn sinn. ég var ekki búin að hlusta ýkja mikið á hann en þeir sannfærðu mig á þessum tónleikum að það voru slæm mistök hjá mér. núna hlusta ég ekki á mikið annað. þarf reyndar fljótlega að skipta yfir í damien rice, við förum nefnilega á tónleikana hans á nösu í júlí.

við skruppum svo heilan dag yfir til svíþjóðar. það var eiginlega uppáhaldsdagurinn minn í allri ferðinni. við leigðum sitthvorn bílinn (gunnsa og co + ég og co með mæju og betu) og keyrðum fyrst upp til helsingör. þaðan tókum við ferjuna yfir til helsingborgar eins og svo oft áður með pabba í gamla daga. ég naut þess að vera í helsingborg, þótt það hafi ekki verið langt stopp, áður en við héldum áfram til ekeby. þar skoðuðum við aðeins storgötuna hans pabba og parkgötuna hans daníels og rifjuðum upp skemmtilegar minningar. þessi tími var tvímælalaust einn sá besti í mínum gömlu dögum. þaðan var farið til åkarp og heilsað upp á jonna í stutta stund. við fórum svo með soffíu og sebastian til veberöd þar sem óðinn og fjölskylda búa. brúnó kom líka þangað með sína fjölskyldu og þar sátum við úti á palli öll saman, grilluðum og spjölluðum á meðan krakkarnir léku sér...við lékum okkur reyndar aðeins líka og svo neyddumst við til að fara heim upp úr klukkan 22. á heimleiðinni ókum við öresundsbrúna. frábær ferð!

reynir björn er 11 mánaða í dag. hann verður því eins árs eftir mánuð. hann er orðinn svo stór og mér finnst ég sjá mun á honum daglega. honum fannst dýragarðurinn í köben æðislegur. hann stóð hjá okkur og öskraði og skrækti á dýrin af spenningi. algjört krútt:)

við erum á leiðinni á ættarmót á snæfellsnesi á morgun hjá pabbaætt. það verður geðveikt stuð þar ef ég þekki fólkið rétt. við ætlum að gera aðra tilraun til að pakka þessu blessaða tjaldi okkar sem við keyptum í vetur. það var soldið kalt í því síðast, brrr! það fylgdi reyndar dvd diskur með því sem ég ætla að horfa á í dag. svo er planið að fara á kollsá um næstu helgi eða þar næstu, eða kannski báðar, það á eftir að ræða það aðeins betur;) síðan fengum við lánað hús í vestmannaeyjum í lok ágúst og við ætlum að vera þar yfir eina helgi. svo er verið að plana afmælisfótboltaferð til englands í haust og svo verður líklegast vinnuferð í haust/vetur til útlanda og þá á ég sko eftir að minnast á frakklandsferðina á landsleikinn í september!!

læt þetta duga í bili. það er ekkert gaman að lesa of löng blögg. setti nokkur lög á fóninn af nýja radiohead disknum. lagið reckoner fer í hóp bestu laga þeirra að mínu mati. svo bætti ég hróa-böndunum við tónleikalistann á hægri kantinum.


kolla...sem þarf að brjóta saman þvott áður en steinsen kemur heim

föstudagur, júlí 04, 2008

sma frettir

allt gott ad fretta hedan. hitinn er reyndar orinn frekar mikill en solin hefur ekki enn nad ad brenna mig. eg nota lika solarvorn eins og mer se borgad fyrir thad;)

fyrstu thrir dagarnir foru i ad versla a strikinu og i field. eg versladi adallega a reyni og var svo meira ad slora og elta systurnar a milli buda. ovenju dopur i thetta skiptid thegar kemur ad budarrapi.

hatidin byrjadi svo i gaer med finum tonleikum duffy i arena tjaldinu. nokkrum timum sidar var svo komid ad godunum minum i radiohead og their svika engan. vid elisabet nadum godu plassi fremst og hlustudum thar a taep 30 log, en their voru klappadir upp tvisvar sinnum! gedveikt:):)

i dag er eg mest spennt fyrir thvi ad sja kings of leon. tha aetla eg aftur ad vera fremst. svo laet eg mer duga a sitja aftar a grasblettinu. kannski spurning um ad vera fremst a neil young. mugison og band of horses verda a sama tima i dag og eg er frekar ful yfir thvi. er ekki enn buin ad akveda mig hvora eg aetla ad sja. hallast samt meira ad band of horses nuna. thad gaeti samt breyst.

gistingin okkar er mjog kruttleg og fin. tveggja herbergja ibud. forum thadan svo a manudagsmorgun til ad saekja fjolskyldurnar ut a flugvoll. sakna theirra mjog mikid. vantar litil reynsaknus.

er a bokasafninu og svitna eins og svin. best ad fara ut og fa ser eitthvad ad drekka. kannski bara bjor?

kolla...sem er komin med fullt af nyjum freknum