fimmtudagur, mars 27, 2008

Undantekning

Ég tala nú ekki oft illa um andstæðinginn og tel mig geta talað um önnur lið nokkuð málefnalega en ég bara verð að deila þessari mynd með ykkur....finnst hún algjör snilld!



kvk

miðvikudagur, mars 26, 2008

þriðjudagur, mars 25, 2008

Bara svona aðeins af okkur

Núna erum við endanlega sprungnar eftir allt átið um páskana!!

Ég ætlaði að setja inn myndband fyrir ykkur en það er ekki alveg að takast....sjitt, hvað ég blóta mikið núna...hrmpf:/ Ég get stundum verið mjög þolinmóð en ALLS EKKI þegar svona hlutir ganga ekki upp AAAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGGGG!!!!!!!!!!!!!

Þannig að kannski ætti ég bara að sleppa því að blogga? Eiginlega orðið of seint núna...er orðin pínu syfjuð en fæ mig ekki til að fara í háttinn. Við Steinsen sitjum inni í stofu og horfum á Idolið í endurtekningu á Sirkus. Steinsen sofnaði á fyrsta laginu....eins og svo oft áður;) Hún sofnar í ca 9 af hverjum 10 skiptum sem við horfum á sjónvarpið. Þá nýti ég tækifærið og borða nammið hennar, tek myndir af henni og geri eitthvað við hana svo hún vakni....s.s. ALGJÖRT PAINE!! Gunnsa systir væri fyrir löngu búin að drepa mig!!! Þegar við förum út úr bænum, t.d. í mataboð á Selfoss, þá sleppi ég því oftast að drekka, bara svo við endum ekki einhvers staðar úti í móa...við höfum þurft að stoppa á miðri leið til að skipta um bílstjóra (skrifaði fyrst bólstjóra....haha, hefði verið fyndið:):) ) þar sem hún er alltaf dottandi við stýrið. En þegar hún situr í farþegasætinu, eins og hún gerir yfirleitt, þá er hún mjög oft steinrotuð áður en við erum hálfnaðar í Hveragerði....og þá er ég að tala um MJÖG OFT:):):) Svo þegar við leggjum í stæðið fyrir utan blokkina okkar þá rumskar hún, lítur út um rifurnar á augnlokunum og segir "Æ, sorry að ég sofnaði" og ég alveg "Já, já, allt í lagi....í 33. skipti!!" HAHAHA, þetta er reyndar soldið fyndið....ég geri bara grín að henni...hún er hvort eð er svo sofandi að hún fattar ekkert HAHAHA:):):) En hún er alltaf sætust og bestust...hún veit það sko alveg:) litla kúrimúsin mín....hver verður bólstjórinn í kvöld, NEI DJÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓK!!!!!!! ;)

Í dag kláruðum við fimmtu og nýjustu seríuna af L Word sem var sýnd í Bandaríkjunum en á eftir að koma hingað. Fyrir utan fyrstu seríuna þá er þessi í uppáhaldi hjá mér en því miður get ég ekki sagt neitt svo ég skemmi ekki spennuna fyrir neinum. Svo kom það reyndar í ljós um daginn að næsta sería í þáttaröðinni verður sú síðasta...búhúhú:(:(:(

kvk plús

Undur og stórmerki gerast enn...


...stórvetraríþróttamanneskjan Kolbrún Edda Carlsen Sigurhansdóttir fór á skauta í fyrsta skiptið á ævinni í gær!! Steinsen og systur Kolbrúnar fimm fannst öllum alveg svakalega gaman að hlæja að henni þar sem hún staulaðist áfram á göngugrindinni og var næstum því búin að klessa niður tvö börn á annarri göngugrind, sem héldu að þau yrðu ekki eldri þegar hún Kolbrún kom aðvífandi á móti þeim....og kunni greinilega ekki að stoppa!! (Það slasaðist þó enginn).


miðvikudagur, mars 19, 2008

Bobby gamli

Vill einhver koma með mér á tónleika Bob Dylan í Egilshöll 26. maí?
Tek það fram að ég þekki nánast ekkert með honum, en ef maður hefur áhuga á tónlist almennt og góðum tónleikum þá lætur maður ekki lifandi goðsögn fram hjá sér fara!!

Miðasalan hefst 27. mars og það er best að kaupa miða þá, því búast má við að þeir seljist strax upp.
Koooomaaaa svoooooo
kvk...1,9

þriðjudagur, mars 18, 2008

monday bloody monday

ég veit ekki hvernig haustið verður hjá mér og ég stressast pínu við tilhugsunina. þarf alltaf að hafa allt á hreinu svo ég geti hugsað skýrt og ef ég get ekki hugsað skýrt þá kem ég ekki mörgum hlutum í verk, ég frýs bara.

margt búið að gerast síðan síðast

- ég er komin með röddina mína aftur. ég var orðin MJÖG þreytt á raddleysinu og fann til með fólkinu sem þurfti að hlusta á mig, ég hefði alla vega ekki haft þolinmæði ef ég væri þau.

- eyðilagði símann minn, missti hann ofan í vatnsglas og hann dó endanlega...keypti nýjan í dag, nettan og ódýran samlokusíma

- fórum í fertugsafmæli til sigrúnar hamarsskutlu á laugardaginn. skemmtidagskrá nánast non-stop frá 20-00:30, bara gaman:)

- RB er að fá fimmtu tönnina...bráðum hættir hann að narta í okkur og byrjar að bíta í staðinn. svo borðar hann meira af mat en við tvær til samans, eitthvað sem hann erfði frá okkur öllum, að elska að borða...og er núna kominn með bumbu og brjóst;)

- páskamótið er núna í vín og það fóru aðeins tveir blakarar frá kmk...þær keppa með öðru liði. það hefði verið snilld að fara til vínar, á gömlu slóðir steinunnar, en vonandi komumst við á næsta mót, hvar sem það verður. hlakka til að hitta allar stelpurnar aftur úr hinum liðunum, þær eru algjörir snillingar og kunna sko að skemmta sér:):):) mótið í fyrra var náttúrlega tær snilld sem við, eða a.m.k. ég, gleymi ALDREI!!! allur pakkinn var eintóm snilld, partíin, blakið, bláa lónið, ballið og bara allt:) (hvað voru mörg snilld í þessari klausu?:) þetta er búið að vera skrítinn vetur þar sem við höfum ekkert verið með kmk, aðeins hitt stelpurnar hér og þar, en núna er óvissuferð á dagskrá hjá liðinu í maí sem verður væntanlega eftirminnileg eins og allt annað sem við gerum saman:)

man ekki meira í bili

að lokum vil ég sýna ykkur eitt af mínum uppáhalds sjónvarps mómentum, en þegar ég sá þetta á sínum tíma þá fékk ég harðsperrur í magann eftir mikið hláturskast og ég mun aldrei fá leið á því að hlæja að þessu:):):):):):):):)




kvk...núll komma níu

miðvikudagur, mars 12, 2008

Johnny Logan

Kommon, hverjum datt í hug að flytja Johnny Logan til Íslands?? Spái því að það verði álíka flopp og Alice Cooper.



Sjitt, hvað þetta er hallærislegt;)


kvk

þriðjudagur, mars 11, 2008

Svunta trunta

Á einhver svuntu með hangandi brjóstum utan á og getur lánað mér hana fram yfir næstu helgi? Nei, þetta er ekki djók:)


kvk - 0,0

mánudagur, mars 10, 2008

Auglýsing

Ég auglýsi hér með eftir röddinni minni...plííís skilið henni ef þið finnið hana, þetta er orðið verulega þreytt ástand!

laugardagur, mars 08, 2008

Alveg búin á því!

Við fórum í gær vestur á Snæfellsnes til að keppa í úrslitakeppninni í 3.deild í blaki. Við vorum bara nokkuð bjartsýnar...vissum að á góðum degi gætum við unnið þetta en eins vissum við að við gætum hæglega tapað fyrir öllum liðunum.

Ég byrjaði á því að skutla Steinsen og RB í Stykkishólm, til Auðar (þar sem liðið fékk gistingu), og svo fórum við Auður áfram til Ólafsvíkur til að keppa tvo leiki. Hún spilar vanalega með Snæfelli en spilaði í gamla daga með Hamri...hún reddaði okkur alveg þessi elska:) Í Ólafsvík hittum við restina af liðinu.

Við töpuðum báðum leikjunum þetta kvöldið, fyrst sanngjarnt fyrir Reyni og svo fyrir Stjörnunni sem var ALGJÖR óþarfi og gott dæmi um hversu andlausar við getum stundum verið! Svo brunuðum við aftur til Stykkishólms þar sem Hreinn (maður Auðar) eldaði ofan í okkur hamborgara og bauð upp á ískaldan LITE bjór. Við sátum svo aðeins fram eftir og kjöftuðum og hlógum enda alveg einstaklega skemmtilegur félagsskapur:)

Í morgun héldum við í síðasta skiptið til Ólafsvíkur til að spila þá þrjá leiki sem eftir voru. Fyrst voru það heimastelpurnar sem unnu okkur nokkuð örugglega en þær eru með álíka sterkt lið og Reynir. Svo voru það vinkonur okkar í Álftanesi sem við töpuðum svo illilega fyrir um daginn. Þessi leikur var miklu betri af okkar hálfu og þótt við töpuðum honum í odd þá vorum við bara samt nokkuð brattar, enda vorum við að vinna okkar fyrstu hrinu hingað til í mótinu!!

Á föstudeginum gekk mér persónulega mjög illa. Ég gerði nánast ekkert af viti fyrir utan kannski uppgjafirnar. Ég gat ekki smassað, varla tekið á móti, engin hávörn, o.s.frv. Í dag byrjaði ég ekkert sérstaklega en gekk vel í síðustu tveimur leikjunum. Fyrir síðasta leikinn var haldið upp á fertugsafmæli Annýjar með pompi og prakt! Við keyptum súkkúlaði-bananaköku og skoluðum henni niður með kampavíni:)

Svo mættum við í síðasta leikinn gegn Grundarfirði sem mér skilst að hafi átt sigurinn í mótinu vísan með því að "klára" okkur. Við Auður vorum svo saddar og þreyttar að við settumst bara á bekkinn og létum hinar um að smassa og hita upp og svo kom reyndar Hugrún líka og tyllti sér hjá okkur...þurftum bara aaaðeins að hvíla okkur;) Svo hófst leikurinn og við með útþembda maga....sem var sko alls ekki slæmt því við unnum leikinn 2-1 eftir æsispennandi odd (reyndar voru allar hrinurnar jafnar og skemmtilegar). Í þessum leik gekk mér best og mér tókst að skora sigurstigið í oddinum með laumu af kantinum og ÞAÐ ER EKKERT EINS SÆTT OG AÐ SKORA SIGURSTIG MEÐ LAUMU!! :):):):):) Það sló algjöra þögn á stuðningsmannaliðið þeirra sem var búið að hvetja þær allan leikinn með gífurlegum hávaða og á stundum heyrðum við ekki í hverri annarri. En okkur fannst þessi stemmning svo geggjuð að við ákváðum bara að njóta þess að spila blak í skemmtilegasta afmæli sem við höfum farið í:) Eftir leikinn var svo ákveðið að héðan í frá (sérstaklega á Öldungamótinu) þá verður alltaf kaka og kampavín á boðstólnum fyrir leiki:)

Í sigurvímu var keyrt heim og ég fór beint að vinna...þar sem ég er núna. Kvefið er ekki horfið og núna er röddin að gefa sig...reyndar hjá okkur báðum hjónunum...erum bara svo samtaka;) Svo er gaman að segja frá því að RB fór vestur með tvær tennur í neðri gómi en er núna kominn með þrjár þar og eina uppi og geri aðrir betur!

Sem sagt geðveikt skemmtilegur sólarhringur á Vesturlandi eftir frekar lasburða og tíðindalitla inniviku í Borginni.

Mér finnst eins og það sé sunnudagur í dag.


kvk strengjabrúða

fimmtudagur, mars 06, 2008

Góð landkynning...

Gunnhildur systir sýndi mér einu sinni þetta myndband á Youtube og við grétum saman úr hlátri þegar við horfum á það! Ef ykkur finnst þetta ekki fyndið þá eruði greinilega ekki með sama húmor og við;) Það er gert grín að þessu myndbandi í síðasta Áramótaskaupi þannig að ef þið hafið ekki fattað það þá þá verðiði bara að horfa á það aftur þegar þið eruð búin að skoða þetta:)

Veikindabælið

Frábær tímasetning, get ekki sagt annað.

RB fékk hita um daginn og þegar hann rann af honum þá vöknuðum við Steinsen báðar með hálsbólgu og kvef, sem fer eiginlega bara versnandi. Af þessum ástæðum hef ég ekkert mætt í skólann í vikunni en er samt búin að vera dugleg að læra fyrir stærðfræðiprófið í FB í kvöld.
Það eina sem ég hugsa reyndar um núna er að drífa mig á læknavaktina eftir kl. 16 í dag til að fá eitthvað við þessu þar sem ég þarf að keppa á morgun og hinn í Ólafsvík. Ef ég keppi ekki þá þarf Hamar að draga sig úr keppni (fyrir utan það þá erum við ekki einu sinni enn búnar að redda sjötta spilaranum!!) og þá yrði Blaksambandið brjálað út í okkur þar sem þeir hafa nú þegar þurft að endurskipuleggja leikjaplanið eftir að nokkur lið duttu úr keppni í síðustu viku:/

Stálumst annars á Kommúnuna í gær og hún var frábær! Mæli eindregið með henni:)


kvk

miðvikudagur, mars 05, 2008

Guð blessi Ronaldo



Heeejjaaaa goooaaaalll!!

mánudagur, mars 03, 2008

Ógeðslegt slys!



Þetta gerðist á heimsbikarmóti í Noregi um daginn og er þessum skíðamanni nú haldið sofandi. Hann hlaut alvarlega höfuðáverka og opið beinbrot, bbbrrrrrrrrrrrr.........


kvk

p.s. ferðasagan er á leiðinni:)