miðvikudagur, júlí 23, 2008

njálgur

loksins höfum við ákveðið að skella okkur á kollsá. planið var að vera þar alla næstu helgi en þar sem við náðum ekki að púsla púsluspilinu þá verðum við þar bara eina nótt. barnlausar. alltaf næs að fara norður. það gæti verið að við færum þangað aftur um versló en eins og staðan er í dag eru meiri líkur á að við förum í bústað til fríðu. kemur í ljós.

þessi mynd frá Kollsá er tekin nítjánhundruðsjötíuogeitthvað. ég var ekki fædd en mamma og pabbi eru lengst til hægri á myndinni. á næstu áratugum fjölgaði allsvakalega í fjölskyldunni. efast um að allir kæmust fyrir á þessari mynd.

ég hef ekki bloggað neitt um skólann síðan í vor. það er viljandi. fékk nóg. síðustu vikurnar voru ekkert sérstakar. eftir prófin útilokaði ég svo allt sem tengdist skólanum, varð að gera það. fyrst núna líður mér betur og ég er að spá í að kíkja á skólapóstinn minn, athuga hvort það leynist eitthvað þar. reyndar er ég komin í nýjan skóla. háskóla íslands. ég ætlaði aldrei að fara í þann skóla en get víst engu um það breytt núna. nema kannski hætt. en það gerir maður ekki, ekki einu sinni vitleysingur eins og ég! þótt ég sé með njálg.

það er eitthvað við sumarið.

hvernig væri að byrja að mála? er ég í stuði núna? nei.

ætla að halda áfram að læra.

kolla...sem sópaði gólfið í gær

2 ummæli:

INGIMAR sagði...

He he alltaf jafn flott þessi mynd. Sé að ég er í sömu rauðköflóttu skyrtunni og ég var í á ættarmótinu!

Kolla sagði...

Fyndið, ég var einmitt mikið að pæla í því alla helgina;)