
við steinsen fórum í gærkvöldi á tónleikana með deimíen ræs. það var smá spenna í loftinu enda var ég áður búin að missa af tveimur tónleikum með honum. hann mætti bara einn þar sem hann sagðist í rauninni vera í sumarfríi og af því tilefni ákvað hann að spila lög sem fólk bað hann um að spila, með því að kalla úr salnum. og til að gera langa sögu stutta þá voru þetta GEÐVEIKIR tónleikar!! hann er frábær á sviði, röddin hans er æðisleg, hann spilaði á gítar og orgel og gerði það sem fólk vill heyra á tónleikum: hann bætti alltaf einhverju við lögin frá því sem þau eru á plötunum, án þess að breyta þeim, fattiði. hann breytti reyndar einu en só. svo sagði hann okkur sögurnar á bak við lögin með einstaklega hnittnum írskum húmor og stundum lá salurinn í hláturskasti. lögin tengjast mörg hver vandræðalegum augnablikum í lífi hans og þá yfirleitt samskiptum hans við hitt kynið. í lok lagsins volcano þá fjórskipti hann salnum og lét hvern hluta syngja eina rödd þar sem fjórar mismunandi raddir fléttast saman í laginu og vitiði, það var GEÐVEIKT!! þetta var sjúklega flott og ég fékk gæsahúð dauðans!! það var flott þegar james blunt lét áhorfendur syngja eitt viðlag hjá sér en þetta var svo margfalt flottara og ég efast um að ég upplifi aftur annað eins. næsta lag á eftir var líka ótrúlega flott en hann ákvað að flytja það fyrir framan míkrafóninn. sjitt, hvað það var ótrúlega töff. þá tók hann cannonball. þessi tvö lög voru topparnir á tónleikunum ásamt mínu uppáhaldslagi, elephant. ég ætla að setja þau á fóninn hérna á vinstri kantinum ásamt nokkrum í viðbót (m.a. cover af radioheadlaginu creep). þessir tónleikar fara beint í hóp minna uppáhaldstónleika. þeir voru mjög líkir dave matthews í glasgow og evu dahlgren í lundi. léttir tónleikar (en samt alveg rokk sko), spjall við áhorfendur, sögustund, húmor, góður salur og auðvitað frábær flutningur. ekki svona eins og á bob dylan. ég er nú bara farin að vorkenna honum.

við fengum heimsókn í gær. frá henni þóru. hún er kennd við kastljósið. hún kom til okkar seinni partinn ásamt tökuliðinu sínu. strákarnir komu líka og þau tóku svo viðtal við okkur öll í herberginu hans reynis. þar sátum við á gólfinu í smá indjánafíling. ég er mjög stressuð að sjá útkomuna. eiginlega frekar mikið stressuð. ég þoli ekki, eins og flestir, að sjá sjálfa mig í sjónvarpinu en núna finnst mér allt í einu öll svörin mín hafa verið alveg hryllilega glötuð. af hverju sagði ég þetta og þetta og þetta og af hverju sagði ég þetta ekki soldið meira svona?!?!?!?!?! díses, glatað ma´r. en ef þið hafið áhuga á að sjá þetta mjög svo glataða viðtal, þá verður það sýnt í gei præd vikunni, veit ekki meir.
kolla...sem fer á kollsá eftir hádegi í dag því hún meikar ekki allt þetta sviðsljós.
p.s. af hverju gátum við ekki bara sagt nei? orri? ORRI! djös ves. í eitt skiptið datt ég út. fann ekki orðið sem ég var að leita að. og myndavélin alveg ætlarðu að gubba þessu út úr þér í dag eða? svo náði ég að redda mér. en samt. díses. ORRI, þetta er allt þér að kenna. og ekki svo þykjast ekki lesa blöggið mitt... ;)



2 ummæli:
Ég er með of mikla athyglissýki á háu stigi, þannig að ég gat ekki sagt nei! Og svo varst það þú sem vildir endilega fara í þetta viðtal, nuðaðir í mér! Og svo tók ég ekki eftir því að þú ættir í einhverjum vandræðum með þetta, talaðir svo mikið að ég komst aldrei að, ég sem hafði svo mikið að segja ;) Þetta vara bara gaman og vonandi birtir Kastljós þegar Þorteinn var að gefa Reyni Birni að borða ;)
Já, sææææll!!
Skrifa ummæli