...og það var frábært í alla staði! ef það hefði verið aðeins minni vindur á laugardaginn þá hefði það verið fullkomið. loksins tókst okkur að tjalda nýja tjaldinu okkar rétt, eftir að hafa horft á dvd-leiðbeiningarnar, fengið góða hjálp frá ingimari og fengið lánaðan hamar hjá ingu rut og einari. það tók okkur engu að síður 2 tíma að klára verkið.
stemmningin var annars ekta. kassagítar og söngur, grillmatur og bjór, spjall og hlátur og gott veður. þessi ætt er algjört eðal.
núna tekur við næsta skipulag. eftir að hafa tekið þátt í að skipuleggja ættarmótið þá tekur við undirbúningur fyrir gay pride. við erum tvær að skipuleggja fjölskylduatriði fyrir gönguna og erum við núna komnar með um 30 manns í atriðið. við stefnum samt á að tvöfalda þá tölu, vonandi náum við því. ég vil annars segja sem minnst frá atriðinu. þegar ég hef horft á gönguna þá finnst mér mesta spennan felast í því að sjá hvernig atriðin eru. þess vegna vil ég sem minnst segja og leyfa spennunni að lifa. svo er bara skyldumæting í bæinn 9. ágúst:)
þessi rigning er ekki alveg að slá í gegn. mér finnst hundleiðinlegt að borða ís í rigningu. það er allt of langt síðan ég fékk mér ís. því fyrr sem góða veðrið kemur því fyrr get ég fengið mér ís.
kolla...sem ætlar að læra inni í rigningunni í allan dag.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli