fimmtudagur, júlí 17, 2008

komin heim

þessi ferð var í alla staði meiriháttar. skemmtilegur félagsskapur, stuð tónleikar, gott veður o.s.frv. eina sem var neikvætt var verðlagið. nenni ekki að tala mikið um gengið en fyrir íslendinga að versla í dk er ekki eins gaman og það var áður, sérstaklega súrt að sjá bjórinn dýrari en hérna heima:/

það sem stóð upp úr á hróa voru radiohead, neil young og kings of leon. þetta voru reyndar þau bönd sem ég var fyrirfram spenntust yfir að sjá og þau stóðu sig öll frábærlega. radiohead, sem ég var að sjá í þriðja skiptið, spilaði allan nýja diskinn sinn. ég var ekki búin að hlusta ýkja mikið á hann en þeir sannfærðu mig á þessum tónleikum að það voru slæm mistök hjá mér. núna hlusta ég ekki á mikið annað. þarf reyndar fljótlega að skipta yfir í damien rice, við förum nefnilega á tónleikana hans á nösu í júlí.

við skruppum svo heilan dag yfir til svíþjóðar. það var eiginlega uppáhaldsdagurinn minn í allri ferðinni. við leigðum sitthvorn bílinn (gunnsa og co + ég og co með mæju og betu) og keyrðum fyrst upp til helsingör. þaðan tókum við ferjuna yfir til helsingborgar eins og svo oft áður með pabba í gamla daga. ég naut þess að vera í helsingborg, þótt það hafi ekki verið langt stopp, áður en við héldum áfram til ekeby. þar skoðuðum við aðeins storgötuna hans pabba og parkgötuna hans daníels og rifjuðum upp skemmtilegar minningar. þessi tími var tvímælalaust einn sá besti í mínum gömlu dögum. þaðan var farið til åkarp og heilsað upp á jonna í stutta stund. við fórum svo með soffíu og sebastian til veberöd þar sem óðinn og fjölskylda búa. brúnó kom líka þangað með sína fjölskyldu og þar sátum við úti á palli öll saman, grilluðum og spjölluðum á meðan krakkarnir léku sér...við lékum okkur reyndar aðeins líka og svo neyddumst við til að fara heim upp úr klukkan 22. á heimleiðinni ókum við öresundsbrúna. frábær ferð!

reynir björn er 11 mánaða í dag. hann verður því eins árs eftir mánuð. hann er orðinn svo stór og mér finnst ég sjá mun á honum daglega. honum fannst dýragarðurinn í köben æðislegur. hann stóð hjá okkur og öskraði og skrækti á dýrin af spenningi. algjört krútt:)

við erum á leiðinni á ættarmót á snæfellsnesi á morgun hjá pabbaætt. það verður geðveikt stuð þar ef ég þekki fólkið rétt. við ætlum að gera aðra tilraun til að pakka þessu blessaða tjaldi okkar sem við keyptum í vetur. það var soldið kalt í því síðast, brrr! það fylgdi reyndar dvd diskur með því sem ég ætla að horfa á í dag. svo er planið að fara á kollsá um næstu helgi eða þar næstu, eða kannski báðar, það á eftir að ræða það aðeins betur;) síðan fengum við lánað hús í vestmannaeyjum í lok ágúst og við ætlum að vera þar yfir eina helgi. svo er verið að plana afmælisfótboltaferð til englands í haust og svo verður líklegast vinnuferð í haust/vetur til útlanda og þá á ég sko eftir að minnast á frakklandsferðina á landsleikinn í september!!

læt þetta duga í bili. það er ekkert gaman að lesa of löng blögg. setti nokkur lög á fóninn af nýja radiohead disknum. lagið reckoner fer í hóp bestu laga þeirra að mínu mati. svo bætti ég hróa-böndunum við tónleikalistann á hægri kantinum.


kolla...sem þarf að brjóta saman þvott áður en steinsen kemur heim

Engin ummæli: