Þessi dagur er búinn að vera mjög sveiflukenndur...ég er búin að vera í góðu skapi, mjög góðu skapi, pirruð og nú síðast í kvöld mjög niðurdregin eftir að Álftanes kjöldróg okkur í 3.deildinni og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að ég hef aldrei upplifað jafnmikla niðurlægingu á blakvellinum og þá skiptir engu máli hvaða lið ég er að tala um!
Þegar svona liggur við þá finnst mér ekkert jafn læknandi og að hlusta á tónlist og þar sem ég er stödd í vinnunni og nenni ekki að hvíla mig fyrir átök morgundagsins þá ákvað ég að finna nokkur lög á netinu til að spila hérna á blogginu og segja ykkur af hverju ég valdi akkúrat þessi lög. Ég ætla að reyna að setja þau í tímaröð:
Roxette - The Look: Þórey hans pabba kynnti mig fyrir þessu bandi (10-11 ára) og lögin þeirra eru alltaf jafn sígild. The Look var svona fyrsta fyrsta lagið sem ég lærði með þeim og þess vegna valdi ég það. Roxette var líka eitt af fyrstu böndunum sem ég fékk æði fyrir (ásamt Michael Jackson, Guns ´n Roses, o.fl.) enda er alveg með ólíkindum hversu mörg góð lög þau eiga, fæ aldrei leið á þeim. Eina bandið sem ég "á" eftir að sjá á tónleikum - algjört möst!!
Pearl Jam - Alive og Black: Einfaldlega uppáhaldshljómveitin mín fyrr og síðar. Alive var fyrsta rokklagið sem ég féll fyrir (12-13 ára) og það má eiginlega segja að það hafi verið "tímamótalagið" mitt því þarna var ekki aftur snúið og Kolla litla var orðinn rokkari. Black fylgdi í kjölfarið og er mitt uppáhaldslag með þeim. Eddie Vedder er náttúrlega Guð í mínum augum. Hef séð þá tvisvar á tónleikum og bíð spennt eftir þeim þriðju;) Einu vonbrigðin var platan þeirra Binaural sem ég get ekki hlustað á:/
Bon Jovi - Always: Þetta tímabil var frekar viðkvæmt hjá mér, miklar tilfinningaflækjur í gangi sem síðar kölluðust "að vera inni í skápnum" (13-14 ára). Það má eiginlega segja að tónlistin hafi bjargað lífi mínu á þessum tíma. Ég gekk endanna á milli í Mosó með vasadiskóið og var alveg í mínum eigin heimi. Mér finnst lögin á best of plötu Bon Jovi mjög góð en að öðru leiti hlusta ég ekkert á hann...eða þá. Hefði reyndar ekkert á móti því að sjá þá á tónleikum;)
Cranberries - Zombie: Ég náði varla andanum þegar ég heyrði þetta lag fyrst enda er þetta lag algjör snilld (14-15 ára). Spyrjið Elísabetu systur. Þetta lag minnir mig alltaf á hana og bíltúrana í gamla daga þegar fæstir bílar voru með geislaspilara. Á einum rúntinum hjá okkur mömmu, Gunnsu og Bettu vildi hún ólm fá að hlusta á geislaspilarann minn (vasadiskóið komið í ruslið - fór með spilarann hvert sem ég fór) og ég setti risastór heyrnatólin á litla hausinn hennar og setti Zombie í botn. Hún fílaði það strax og gargaði hátt og falskt með: "Grinjor heeeed, grinjor heeeeeeeed, sooombíí, sooombíí , soooombíí híí híí..." (Grinjor heed = In your head:)). Síðust ár hefur Elísabet verið að stimpla sig inn sem mikill rokkari og má því segja að uppeldið hefur tekist alveg glimrandi vel hjá mömmu;)
K´s Choice - Not An Addict: Þarna var Kolla litla komin út úr skápnum (16-17 ára). Samt ennþá einhverjar tilfinningaflækjur í gangi en ég var ekki alveg búin að fatta hvernig ég vildi haga mér í lífinu. Þetta lag hjálpaði mér mikið og er svona ekta "nýkomin-út-úr-skápnum" lag. Það minnir mig á þegar ég hjólaði alltaf í gegnum Laugardalinn í skúringarvinnuna mína:) Alveg einstaklega sexí lag!
Wham - Wake Me Up Before You Go-Go: Komin út úr skápnum, búin að kynnast fullt af öðrum kynvillingum og farin að ná tökum á tilfinningunum (17-... ára). Þetta lag minnir mig einfaldlega á þrennt: Ragga vin minn, fimmtudagskvöldin á 22 og bílferðina okkar Ragga til ömmu á Borðeyri...þetta lag (ásamt Last Christmas) var bókstaflega á repeat alla leiðina! Yndislegur tími:):) Þetta lag kemur mér alltaf í gott skap...aðallega gott dansskap...og það skiptir ekki máli hvort ég sé stödd á barnum eða á klósettinu, því þegar þetta lag er spilað á skemmtistöðum þá þýt ég út á gólfið...klikkar ekki!! Ef ég er stödd á skemmtistað og er ekki alveg sátt við lagavalið þá er ég ekki lengi að vippa mér yfir til plötusnúðsins og biðja hann vinsamlegast um að spila Wake me up:)
Depeche Mode - Enjoy The Silence: Einn helsti kosturinn við að hafa komið út úr skápnum var að það opnaðist í leiðinni fyrir mér nýr heimur af tónlist sem ég hefði annars "aldrei" kynnst (sko kannski bara). Það var mikið af eldri tónlist eins og t.d. Madonnu, Abba, Duran Duran, Janis Joplin, Wham og Depeche Mode. Depeche Mode er ástæðan fyrir því að stundum vildi ég hafa fæðst nokkrum árum fyrr og upplifað tímabilið sem þeir voru hvað vinsælastir. Þetta lag er þeirra allra besta og ég fæ aldrei leið á því. Á tímabili hlustaði ég bara á þetta lag, aftur og aftur og aftur (19 ára). Hef alltaf langað til að dansa við það þótt það sé ekki beint danslag, en það er eitthvað sexí við það sem fær mig til að vilja dansa...annars staðar er heima hjá mér;)
Robbie Williams - Feel og New Order - Crystal: Ég stekk yfir smá tímabil og nokkur sambönd en á þessu tímabili var ég í fyrsta skiptið single í nokkur ár og fékk mér góða heilsárs pásu. Sambandspásu sko....en var dugleg að skemmta mér (22 ára). Feel með Robbie Williams markar þetta ár hjá mér frá A-Ö. Það fór varla úr spilaranum allan tímann og ég mun ALDREI fá leið á því. Þetta er mest sexí lag af öllum sexí lögum sem ég þekki!! Ég er ekki mikill Robbie Williams aðdáandi en hann á nokkra góða mola og má segja að þetta lag sé algjör gullmoli. New Order lagið fær að fljóta með því það kemur mér alltaf í dansstuð og ég man ekki hvað lagið heitir sem ég dansaði mest við á þessum tíma.
Elton John - Your Song: Elton John, Paul McCartney, Billy Joel, Abba og fleiri snillingar eru í miklu uppáhaldi hjá Steinu minni. Eftir hið mikla djammár byrjuðum við saman og ég fór alveg óvart að hlusta á tónlist sem ég hafði ekki hlustað mikið á (23-... ára). Reyndar fann ég ekki Elton John lagið sem minnir mig mest á þennan tíma en þetta er álíka gott. Alltaf gott að víkka "tónlistar-sjóndeildarhringinn"...það er sko merki um þroska;) Ég kynntist Steinunni á fullkomnum tíma í lífi mínu og mér líður mjög vel í dag....bara eins og í góðri bíómynd!
Mika - Relax (Take It Easy): Þetta lag er árið 2007 í hnotskurn. Það er mjög sexí og mig langar geðveikt til að dansa við það hefur ekki ennþá orðið af því:/ Mika átti eiginlega árið 2007 og platan hans minnir mig á ca. 25 stelpur úr Mosó sem ég kynntist síðastliðin þrjú ár og hitti þær á þessu tímabili oftar en fjölskylduna mína. Þær höfðu rosalega mikil áhrif á mig og eru ástæðan fyrir því að ég vildi verða kennari. Þær elska Mika og fengu aldrei leið á að hlusta á diskinn hans eða syngja lögin þannig að í hvert einasta skiptið sem ég heyri í honum þá hugsa ég til þeirra. Ok, þetta er s.s. væmni hlutinn:) Kannski finnst einhverjum að ég sé of dramatísk en þessar stelpur skiptu mig bara svo miklu máli og mér finnst ég eiga svo mikið í þeim, en allt tekur enda einhvern tímann en vonandi fæ ég bara að þjálfa þær aftur í framtíðinni;)
Þess má til gamans geta að ég var einmitt á þeirra aldri þegar ég byrjaði að lifa svona mikið fyrir tónlist eins og þið hafið kynnst núna:)
Rihanna - Please Don´t Stop The Music: Þetta lag fær að fljóta með af gamni, bara svona til að enda á léttu nótunum. Mjög sexí lag sem ég elska að dansa við. Mitt uppáhaldsdanslag í dag:)
kvk
P.S. Orð dagsins: "Sexí" :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
Ég get svo svarið það, þú hugsar í tónlist. Þ.e. það er alveg sama hvaða tíma þú ert að rifja upp, þú manst alltaf hvaða tónlist þú varst að hlusta á á þeim tíma. Skemmtileg aðferð til að muna atburði og upplifanir ;o)
Já, ég er frekar skrítin;) það var samt rosalega erfitt að velja lögin, hefði getað valið ca 50 í viðbót!
Takk fyrir að kommenta:)
kvk
Skrifa ummæli