
Úrslitakvöldið í íslensku undankeppninni er á laugardaginn og litla Júróvisjón nördið í mér er loksins farið að vakna eftir frekar leiðinlegan og langdreginn vetur í Laugardagslögunum. Ég held að keppnin standi á milli "Ho ho ho..." og "This is my life", eins og reyndar flestir halda. Mér er þannig séð sama hvort lagið fari áfram en held þó aðeins meira með "This is my life"...ég einfaldlega elska ekta Júróvisjónklisjur:)

Ég er búin að setja fimm ný lög á fóninn, öll með Radiohead, í tilefni af því að þeir ætla að skella sér á Hróarskeldu í sumar....get ekki beðið!! Ég ætlaði að velja mín fimm uppáhaldslög með Radiohead til að leyfa ykkur að heyra en það var auðvitað hægara sagt en gert. Þau sem ég valdi eru öll af fyrstu tveimur plötunum sem eru lang lang bestar af þeim sem þeir hafa gefið út. Ég get þó sagt að tvö efstu lögin eru og verða alltaf tvö bestu að mínu mati enda eru miklar og sterkar tilfinningar á bak við þau:)
(Núna eru þeir að spila "Wadde hadde dudde da" - koma soo, þið verðið að hlusta á þessa stöð! Bara gaman:):) )
kvk
P.S. Flutti tónleikalistann minn af gamla blogginu yfir á það nýja eins og þið sjáið á hægri kantinum:)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli