fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Klósettferðir

Ég lofa að ég lýg ekki, ýki ekki og hagræði ekki sannleikanum þegar ég segi að mér líður eins og á klósettinu í Herjólfi þegar ég fer á klósettið í skólanum. Ég endurtek, ég er ekki að ýkja þetta!




Ég fór í tvisvar sinnum til Vestmannaeyja með Herjólfi síðasta sumar og þurfti nokkrum sinnum að nota klósettið í þessum ferðum. Það var í einu skiptin sem mér varð hálf flökurt, enda var ég mjög heppin með veður. Þetta tengist í rauninni flugvélum líka, að þurfa að setjast á einhverja skál í miðri siglingu (eða í miðju flugi), reyna að halda jafnvæginu og ná að hitta á skálina í leiðinni er ekkert sérstaklega auðvelt!

Það sem mér finnst eiginlega verst eru óhljóðin í vélunum...bæði í flugvélum og Herjólfi. Maður heyrir varla í sjálfum sér og mér verður alltaf hálfflökurt. Og þá er komið að tengingunni við klósettið í skólanum.

Klósettið sem er á móti Smiðjunni er með þremur "básum" hlið við hlið í sama rýminu og einhvers staðar fyrir ofan þau (hef ekki enn fundið út hvar!) kemur þetta hrikalega vélarhljóð sem minnir mig alveg skuggalega mikið á vélarhljóðið úr Herjólfi!! Þannig að þegar ég sest á skálina þar þá byrjar mig stundum að svima (nei, ég er EKKI að djóka) og mér finnst ég vera stödd einhvers staðar á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja í mestu vandræðum með að hitta á skálina og svona nett flökurt.

Ég veit að ég er ótrúleg, en ég hélt að þetta væri bara ímyndun í mér en svo fór ég aftur á þetta klósett í skólanum um daginn í fyrsta skiptið á þessu ári og það nákvæmlega sama gerðist aftur.


Lag dagsins: "Come undone" með Duran Duran


kvk

Engin ummæli: