þriðjudagur, október 14, 2008

vöknuð

af værum blundi...eða áfengisdauða, þið megið ráða.

jú, ég er víst komin heim frá frakklandi og er rétt nýbyrjuð að finna aftur bragðið af matnum. áður bragðaði allt eins og bjór. ef þið viljið nánari útskýringu á þessu tuði í mér þá getið þið einfaldlega skoðað frakklandsmyndirnar á feisbúkk. ferðin var annars algjört brill og það er mikið búið að rifja upp ógleymanleg móment úr henni. einhverra hluta vegna kem ég stundum þar við sögu en þið munið ekki lesa neitt um það hérna og heldur ekki á feisbúkk, þar sem myndirnar segja sko ekki alla söguna;) annars var ég bara mjög stillt og gerði ekkert af mér. þið eigið alltaf að trúa þeirri útgáfu, ok?

það hefur alveg ótrúlega margt gerst síðan ég bloggaði síðast. bankar, fyrirtæki og einstaklingar orðið gjaldþrota eða stefna í þrot og selfyssingar geta ekki keypt sér gjaldeyri í heimabæ sínum. það finnst mér algjör brandari! við keyptum gjaldeyri í dag þar sem við ætlum ekki lenda í einhverjum kreditkortaævintýrum í manchester (smá tilvitnun í frakklandsferðina:). við erum s.s. á leiðinni til manchester núna á föstudaginn og komum heim á mánudaginn. aðalástæða ferðarinnar er að fara á leik mu-wba á laugardaginn. ég er reyndar svo klikk að ég fór á netið í dag til að skoða hvaða leikir væru á dagskrá um helgina og við hverja united ætti að spila. döh! það er kannski ekki alveg runnið af mér...

í þessari viku og næstu er ég á fullu í vettvangsnámi í varmárskóla. gærdagurinn var hundleiðinlegur en dagurinn í dag var skemmtilegur þannig að ég hlakka til að fara aftur á morgun. ég er reyndar að vinna til 2 í nótt þannig að það verður ekki auðvelt að vakna í fyrramálið:/

svo er verið að kjósa besta knattspyrnumann íslands frá upphafi í kvöld. mér finnst frekar augljóst hverjir verða í þremur efstu sætunum. það verða albert guðmundsson, ásgeir sigurvinsson og eiður smári. annað yrði skandall. ég kaus ásgeir. svo vil ég eið í annað og albert í þriðja. lemur í kjós.

já, eitt soldið sérstakt sem ég gleymdi að minnast á. vettvangsnámið mitt er í gamla skólanum mínum í mosó, gaggó mos. þegar ég var í 8. bekk þá fékk ég í fyrsta skiptið þá hugsun í kollinn að ég gæti verið samkynhneigð. það var í október eða nóvember 1992 og ég man nákvæmlega hvar ég stóð og hvað "varð til þess" að ég hugsaði fyrst út í þetta. ég ætla reyndar ekki að segja ykkur það;) ég stóð þar aftur í gær til að rifja upp gamla tíma og mér leið hálf kjánalega. en mér fannst það líka soldið gaman. ég stoppaði hinar stelpurnar, stóð á staðnum og sagði "jæja stelpur, hérna fattaði ég fyrst að ég væri lesbía." Þær alveg "jáááá kolla, fræðandi." mér fannst það alla vega mjög merkilegt. spes.

fékk smá ritræpu.

að lokum ætla ég að birta ljóð eftir sjálfa mig sem ég samdi um daginn eftir allt "efnahagshrunið":

farið allt sem átti ég forðum
fangið nakið, sálin tóm
gamall heimur genginn úr skorðum
gráhærður orðinn af eilífum áhyggjum

hér var allt en svo er ei lengur
auðir bekkir, engin hljóð
horfinn lífsins farsæli fengur
ég fæst ekki til þess að gleyma

ó

hvar er draumurinn
hvar ertu lífið sem ég þrái
ó, ó, eilífðin
hvar eru gleði mín og sorg
hvar er draumurinn


verið góð hvert við annað, krakkalakkar


kolla...sem skrifar alltaf soldið í staðinn fyrir svolítið, get used to it:)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Kolla, hvernig fattaðirðu í gaggó mos á þessum akkúrat stað að þú værir lesbía?

Kolla sagði...

já, ekkert mál, ég skal bara segja þér það hér og nú! sko....glætan spætan;)

Nafnlaus sagði...

Elsku besta Kolla mín, ég er svo forvitin, þú verður að segja mér það.