miðvikudagur, október 29, 2008

glorí glorí manjúnæded

komin heim frá manchester. æðisleg ferð en heldur rólegri en sú síðasta;) við sátum á fimmta bekk frá hliðarlínunni og ca 20 metra frá ferguson og félögum. eins átti ronaldo nokkra lipra spretti upp kantinn, beint fyrir framan nefið á okkur! við vorum soldið eins og krakkar í disney world:) núna er mánuður í næstu ferð.

við í hamri fórum á laugarvatn í gær til að keppa á heimsmeistaramóti sveitamanna (hsk). frammistaðan var frekar slök af okkar hálfu í heildina. við náðum fjórum góðum hrinum af átta. mér gekk sjálfri ágætlega, svona miðað við æfingaleysi undanfarið. það var samt eitt móment sem stóð upp úr. ég var upp við netið á miðjunni og búin að taka á móti fyrsta bolta, sem var stuttur. ég sá kantinn okkar og hélt að hún ætlaði að smassa boltann yfir og ákvað því að bakka svo ég væri ekki fyrir henni. ég tók eitt, tvö skref og BANG!!! haldið þið að steinunn, sem er uppspilarinn, hafi ekki hlaupið aftan á mig!! og þar sem ég er stórbeinótt, rauðhærð, freknótt og auk þess á túr, að þá flaug hún náttúrlega beint í gólfið og allir tóku andköf á vellinum. "ertu í lagi?!" - "braustu nokkuð rifbein?!" - "eru tennurnar á þér heilar?!" en, nei, það spurði mig enginn. enda er ég, eins og ég sagði þegar ég var lítil, gille beppa (dugleg stelpa). svo er það 3. deildin um helgina í mosó. það verður sko stuð. vonandi heldur ökklinn, sem var orðinn mjög tæpur undir það síðasta.

það gengur alltaf jafn vel með rb. hann er reyndar orðinn ótrúlega mikill prakkari. hann læðir sér stundum í dvd hillurnar, lítur við og athugar hvort við föttum eitthvað. hann tekur einn disk út og sér svo að við erum á leiðinni. þá gjörsamlega sópar hann úr hillunum skríkjandi eins og við séum í kapp. ótrúlega stoltur.

ég ætla núna að vera duglegri að blogga. næsta færsla kemur fljótlega.

kolla...sem elskar að keppa í blaki

Engin ummæli: