miðvikudagur, júní 18, 2008

síðan síðast...

* við vorum á leiðinni í vinnuhitting á fimmtudaginn þegar steinsen tilkynnti mér það að hún væri bara að plata mig. það var enginn hittingur í vinnunni. í staðinn rétti hún mér tvo miða á james blunt og sagðist hafa planað það í tvo mánuði að koma mér svona skemmtilega á óvart. ok, kannski ekki alveg tvo mánuði. meira svona tvo daga. ég hef aldrei verið sérlegur aðdáandi jb en síðustu vikur hef ég hlustað á lögin hans í útvarpinu og allt í einu varð ég heit fyrir þessum tónleikum. eins og svo oft áður þá lét ég sko steinsen aldeilis vita af því. tónleikarnir voru meiriháttar. hann spilaði öll þekktustu lögin sín og meira til, sagði brandara og gaf mjög mikið af sér. öfugt við bob dylan. hann er náttúrlega mesti fýlupúkinn í bransanum. og fyrir vikið þá voru tónleikar jb helmingi skemmtilegri en bd. takk fyrir mig:)

* ég er orðin frekar leið á að hlusta á og lesa ísbjarnarfréttir. sé alveg fyrir mér einhverja fréttamenn standa á bak við þetta allt saman. ég sé þá fyrir mér í fjörunni fyrir norðan að sleppa björnunum svo þeir hafi eitthvað um að fjalla í gúrkutíðinni.

* gleðilega þjóðhátíð

* reynir björn var 10 mánaða í gær. ennþá finnst mér eins og hann hafi fæðst í gær. hann sagði "datt" í fyrsta skiptið í morgun.

* ég er búin að borða ís á hverjum degi í nokkra daga. ég bara get ekki að því gert. allt sólinni að kenna. en ég kvarta ekki. ég elska ís.

* við fórum í golf á laugardaginn OG sunnudaginn. það er helmingi oftar en allt síðasta sumar. núna langar mig í golf á hverjum degi.

* er að hlusta á nýja diskinn með kings of leon. hann er alveg brill. þeir verða líka á hróa. ekki leiðinlegt það.

* ítalía komst áfram á em. ég er alveg í skýjunum með það. svo klára svíar rússana í dag og þá er allt fullkomið. ef það gerist, þá mæta þeir hollendingum og ítalir mæta spánverjum. titturinn sjitturinn. ég vona að hollendingar vinni mótið. alltaf gaman þegar besta liðið vinnur.

* nú eru tæpar tvær vikur í danmörku og ég er farin að slípa kreditkortið.

kolla...glæder sig i solen

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Verði þér að góðu