fimmtudagur, júní 19, 2008

Ronald-go

þá er hann víst farinn til Real Madrid...bara fá eins mikið fyrir hann og mögulegt er!

ég þoli ekki þegar ég fer í ísbúð, bið um STÓRAN
bragðaref en fæ svo bara LÍTINN!! aaaaaaarrrrrggg!!! með 50 manns í biðröð hafið ég það ekki í mér að leiðrétta hana, fór bara grátandi út í bíl:S ég verð þá bara að fara aftur á morgun...þá verð ég svona eins og Jóna og Helga, í ísbúðinni á hverjum degi;)

og svo er að fjölmenna og fjölkvenna á völlinn á laugardaginn - kl. 14:00!!

svíarnir duttu út í gær en þjóðverjar unnu í dag, gott á portúgal. þótt ég vonist til þess að holland vinni þá spái ég rússum sigri gegn þeim núna í 8-liða úrslitum. 2-2 eftir venjulegan leiktíma og svo klára rússar þetta í vító. frekar óraunhæft en ef það er einhver sem getur stöðvað hollendingana, þá er það guus hiddink, hollenski þjálfari rússa, sá sami og kom s-kóreu í undanúrslit á hm 2002 og tapaði svo reyndar fyrir tyrkjum í leiknum um þriðja sætið. svo til að auka við þekkingu ykkar þá kom hann ástralíu í fyrsta skiptið í þeirra sögu í 16-liða úrslit á hm 2006, þar sem þeir skildu m.a. króata eftir í riðlinum og töpuðu svo mjög tæpt fyrir ítölum 1-0 í 16-liða úrslitunum. þannig að rússland er fjórða landið sem hann kemur upp úr riðlakeppni á stórmóti (ásamt hollandi) og ég mæli því eindregið með því að ksí hringi í hann næst þegar skipta á um landsliðsþjálfara.

sorry, missti mig aðeins. þessi fróðleiksmoli var í boði ísbúðar vesturbæjar.

kolla...sem horfir núna aðeins á einn fótboltaleik á dag í stað tveggja

p.s. setti nokkur ný lög á fóninn. 3 með james blunt, út af tónleikunum um daginn, og svo nokkur lög með böndum sem verða á hróa, fyrir utan flobots. finnst það bara töff. þótt þið sjáið ekki öll lögin í einu á spilaranum þá eru stundum nokkur fyrir neðan sem þið getið fundið þegar með því að ýta á next takkann.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Collina!

Steinsen stendur hérna fyrir aftan mig og skipar mér að skrifa athugasemd við síðustu færslu. Nú er hún að snúa upp á vinstri handlegg ... Á, Á, Áiiii!!! :)

ENÍHÚ, Ógisslega töff og mega-hot síða btw :o) Vertu áfram dugleg að blogga en ekki samt allt of mikið um fótbolta því það er soldið fyrir utan mitt áhugasvið :p hehe.

Knúzzzzz,
Sólfríður Hansen