og til að pakka saman þessu júróvisjónbloggi þá vil ég segja eitt: hættum þessu væli um austur og vestur mafíur og reynum bara að skemmta okkur:)
ég er búin að fara á tvenna tónleika á einni viku, fyrst á john fogerty í síðustu viku og svo í fyrradag á bob dylan. Þessir menn eru eins og svart og hvítt...fogerty meira eins og hvítt og dylan eins og svart. þá meina ég að fogerty var miklu skemmtilegri á sviðinu heldur en dylan og það virkaði eins og hann væri að túra eingöngu vegna þess að hann hefði gaman að því en ekki vegna peninganna (þótt það sé ekki alveg þannig) en hjá dylan var það akkúrat öfugt. fyrir þá sem ekki vita þá er fogerty söngvari creedence clearwater rivival en þeir eiga ótrúlega mörg góð lög og setti ég nokkur þeirra á fóninn hérna á hægri kantinum ásamt einu dylanlagi. þeir tóku öll þessi lög á þessum tónleikum og reyndar var það þannig að þetta dylanlag var það eina sem ég þekkti á tónleikunum hans! en hjá fogerty þekkti ég hátt í tíu lög og þess vegna skemmti ég mér miklu betur á þeim tónleikum en dylans.
annars er sumarið að fá skemmtilega mynd á sig og í gær bókuðum við útilegu númer tvö. við förum í lok júní í skaftafell og svo á ættarmótið í lok júlí. þá gefst okkur tækifæri til að nota nýja stóra tjaldið sem við keyptum á útsölu í vetur og eins verður athyglisvert að sjá hvernig reynir björn fílar það að sofa í tjaldi:) hann er orðinn svo duglegur að sofa á nóttunni án þess að vakna neitt. það gerist reyndar ekki alveg á hverri nóttu ennþá en ef hann vaknar þá er það bara einu sinni fyrir örlítinn vatnssopa og svo hrýtur hann aftur...litla krútt:)
reynir fer svo í sína fyrstu utanlandsferð í sumar þegar hann og steinunn koma út til mín eftir hróarskeldu og verða í fjórar nætur. ég er svo spennt að ég er strax byrjuð að skoða hvað við getum gert...fyrir utan auðvitað að versla! ég ætla samt að reyna að klára það sjálf fyrir festivalið þegar ég er eftirlitslaus, mohahaha!!
best að gera eitthvað að viti...
kolla...sem finnst æðislegt að tjilla í fríinu
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli