ég held að málið í dag sé að skella sér í bæinn og njóta veðurblíðunnar...nenni alla vega ekki að hanga heima í dag. við byrjuðum á smá framkvæmdum heima í gær, máluðum tvo veggi í herbergi reynis og plötuðum pabba í heimsókn til að taka niður gardínukappana og trúið mér, ÞAÐ VAR MJÖG ERFITT! en það hafðist að lokum og þá voru götin spörsluð og bara eftir að mála aðeins yfir.
við keyptum líka gardínur í herbergið hans og gardínustöng og eigum eftir að setja þær upp, en þau verk mega bíða til rigningardags. steinunn er að klára fæðingarorlofið sitt og byrjar að vinna á þriðjudaginn. þess vegna er um að gera að gera eitthvað skemmtilegt saman í góða veðrinu á meðan hún er í "fríi". við keyptum málningu fyrir stofuna sem væri gaman að mála fyrir haustið og svo þurfum við að fá mömmu gardínuexpert til að hjálpa okkur að taka ákvarðanir í þeim málum...alla vega í stofunni. svo væri ágætt að klára að hengja upp allar myndirnar sem hafa beðið í rúmlega 2 ár! Ekki hægt að segja að það sé stress á þessu heimili;)
kolla...í framkvæmdarfíling í góða veðrinu
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli