fimmtudagur, mars 06, 2008

Veikindabælið

Frábær tímasetning, get ekki sagt annað.

RB fékk hita um daginn og þegar hann rann af honum þá vöknuðum við Steinsen báðar með hálsbólgu og kvef, sem fer eiginlega bara versnandi. Af þessum ástæðum hef ég ekkert mætt í skólann í vikunni en er samt búin að vera dugleg að læra fyrir stærðfræðiprófið í FB í kvöld.
Það eina sem ég hugsa reyndar um núna er að drífa mig á læknavaktina eftir kl. 16 í dag til að fá eitthvað við þessu þar sem ég þarf að keppa á morgun og hinn í Ólafsvík. Ef ég keppi ekki þá þarf Hamar að draga sig úr keppni (fyrir utan það þá erum við ekki einu sinni enn búnar að redda sjötta spilaranum!!) og þá yrði Blaksambandið brjálað út í okkur þar sem þeir hafa nú þegar þurft að endurskipuleggja leikjaplanið eftir að nokkur lið duttu úr keppni í síðustu viku:/

Stálumst annars á Kommúnuna í gær og hún var frábær! Mæli eindregið með henni:)


kvk

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rosalega skemmtileg sýning, fullt af strípalingum ;o)

Annars er það bara áfram, snýta, bryðja hálsbrjóstsykur og dæla í sig nefúða, úff