Við fórum í gær vestur á Snæfellsnes til að keppa í úrslitakeppninni í 3.deild í blaki. Við vorum bara nokkuð bjartsýnar...vissum að á góðum degi gætum við unnið þetta en eins vissum við að við gætum hæglega tapað fyrir öllum liðunum.
Ég byrjaði á því að skutla Steinsen og RB í Stykkishólm, til Auðar (þar sem liðið fékk gistingu), og svo fórum við Auður áfram til Ólafsvíkur til að keppa tvo leiki. Hún spilar vanalega með Snæfelli en spilaði í gamla daga með Hamri...hún reddaði okkur alveg þessi elska:) Í Ólafsvík hittum við restina af liðinu.
Við töpuðum báðum leikjunum þetta kvöldið, fyrst sanngjarnt fyrir Reyni og svo fyrir Stjörnunni sem var ALGJÖR óþarfi og gott dæmi um hversu andlausar við getum stundum verið! Svo brunuðum við aftur til Stykkishólms þar sem Hreinn (maður Auðar) eldaði ofan í okkur hamborgara og bauð upp á ískaldan LITE bjór. Við sátum svo aðeins fram eftir og kjöftuðum og hlógum enda alveg einstaklega skemmtilegur félagsskapur:)
Í morgun héldum við í síðasta skiptið til Ólafsvíkur til að spila þá þrjá leiki sem eftir voru. Fyrst voru það heimastelpurnar sem unnu okkur nokkuð örugglega en þær eru með álíka sterkt lið og Reynir. Svo voru það vinkonur okkar í Álftanesi sem við töpuðum svo illilega fyrir um daginn. Þessi leikur var miklu betri af okkar hálfu og þótt við töpuðum honum í odd þá vorum við bara samt nokkuð brattar, enda vorum við að vinna okkar fyrstu hrinu hingað til í mótinu!!
Á föstudeginum gekk mér persónulega mjög illa. Ég gerði nánast ekkert af viti fyrir utan kannski uppgjafirnar. Ég gat ekki smassað, varla tekið á móti, engin hávörn, o.s.frv. Í dag byrjaði ég ekkert sérstaklega en gekk vel í síðustu tveimur leikjunum. Fyrir síðasta leikinn var haldið upp á fertugsafmæli Annýjar með pompi og prakt! Við keyptum súkkúlaði-bananaköku og skoluðum henni niður með kampavíni:)
Svo mættum við í síðasta leikinn gegn Grundarfirði sem mér skilst að hafi átt sigurinn í mótinu vísan með því að "klára" okkur. Við Auður vorum svo saddar og þreyttar að við settumst bara á bekkinn og létum hinar um að smassa og hita upp og svo kom reyndar Hugrún líka og tyllti sér hjá okkur...þurftum bara aaaðeins að hvíla okkur;) Svo hófst leikurinn og við með útþembda maga....sem var sko alls ekki slæmt því við unnum leikinn 2-1 eftir æsispennandi odd (reyndar voru allar hrinurnar jafnar og skemmtilegar). Í þessum leik gekk mér best og mér tókst að skora sigurstigið í oddinum með laumu af kantinum og ÞAÐ ER EKKERT EINS SÆTT OG AÐ SKORA SIGURSTIG MEÐ LAUMU!! :):):):):) Það sló algjöra þögn á stuðningsmannaliðið þeirra sem var búið að hvetja þær allan leikinn með gífurlegum hávaða og á stundum heyrðum við ekki í hverri annarri. En okkur fannst þessi stemmning svo geggjuð að við ákváðum bara að njóta þess að spila blak í skemmtilegasta afmæli sem við höfum farið í:) Eftir leikinn var svo ákveðið að héðan í frá (sérstaklega á Öldungamótinu) þá verður alltaf kaka og kampavín á boðstólnum fyrir leiki:)
Í sigurvímu var keyrt heim og ég fór beint að vinna...þar sem ég er núna. Kvefið er ekki horfið og núna er röddin að gefa sig...reyndar hjá okkur báðum hjónunum...erum bara svo samtaka;) Svo er gaman að segja frá því að RB fór vestur með tvær tennur í neðri gómi en er núna kominn með þrjár þar og eina uppi og geri aðrir betur!
Sem sagt geðveikt skemmtilegur sólarhringur á Vesturlandi eftir frekar lasburða og tíðindalitla inniviku í Borginni.
Mér finnst eins og það sé sunnudagur í dag.
kvk strengjabrúða
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



Engin ummæli:
Skrifa ummæli