sunnudagur, febrúar 10, 2008

Í vinnunni

Ég sit núna í vinnunni og læt mér leiðast þangað til Dexter byrjar í sjónvarpinu...það er rúmlega tveir tímar í það:/

Ég átti að keppa í 3. deildinni um helgina með Hamri en mótinu var frestað um viku vegna veðurs (surprise!) og ég var pínu svekkt þar sem ég hlakkaði mikið til að blaka. Ég þarf á mikilli útrás að halda núna...það var svo gaman þegar ég var í FB og var 4-5 sinnum í viku í blaki. Eftir langt hlé byrjaði ég að mæta aftur á æfingar fyrir austan og vonandi næ ég að mæta a.m.k. einu sinni í viku fram að sumri.

Við fórum í mjög skemmtilegt fertugsafmæli í gær þar sem ég mætti í svörtum ruslapoka. Ég tapaði veðmáli við afmælisbarnið og var víst búin að lofa þessu...fyrir ca. 15 mánuðum síðan!! En það var bara gaman að því og þegar ég var búin að gera mig að nógu miklu fífli þá leyfði afmælisbarnið mér að fara úr pokanum og eftir stóð ég nakin + skyrtu, buxum og vesti;) Fríða tók mynd af mér í pokanum og ef ég fæ myndina hjá henni þá skal ég kannski birta hana hérna:):)

Annars bíð ég spennt eftir sumrinu. Þá ætlum við RB að hanga saman í júní og vonandi náum við að fara í nokkrar útilegur í nýja, fína, fallega tjaldinu okkar. Sumarið verður væntanlega svipað og veturinn hjá mér, fyrir utan auðvitað skólann (og veðrið;) ). Ég verð í Gullnámunni áfram en býst ekki við að vinna annars staðar, þótt það væri óneitanlega gott fyrir budduna. En það eru ekki margir sem ráða starfskraft í einn og hálfan mánuð og svo vil ég ekki heldur hvað sem er.

Best að ég stoppi hérna, þið eruð ekki vön að lesa svona langt blogg hjá mér;) Hendi ruslapokamyndinni inn um leið og ég fæ hana...svo lengi sem hún sé birtingarhæf.

Lag dagsins: "Heyr mína bæn" með Ragga Bjarna og Guðrúnu Gunnars.


kvk

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HæPæ, rétt að kvitta fyrir innlitið.

Vertu dugleg að blogga. Léttir manni lífið ... og já, skelltu inn ruslapoka myndinni múhahahaha :)

Kv.
Solla Happó