miðvikudagur, janúar 23, 2008

Heppin

Eftir að RB var með gubbupest meira og minna alla síðustu viku þá þakka ég fyrir að eiga LEÐURSÓFASETT!! Það hefur sko aldeilis fengið að kenna á því og ekki vandamálið að þrífa það. Mér finnst að það ætti að mæla með þessu í öllum handbókum um barnauppeldi;)

Ég hringdi í íþróttaútvarpsþátt í gær og spáði fyrir um úrslit leiksins við Þjóðverja. Ég spáði 34-28 og vann þar sem ég var næst réttum úrslitum (35-27). Í vinning fékk ég út að borða á Players fyrir fjóra (bjóra)...vúhú!! Planið er s.s. að fara og sjá Man.Utd-Tottenham á sunnudaginn þar sem við erum ekki með Sýn (skandall!!).

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvaða heilvita manneskja vill horfa á Sýn?

Nafnlaus sagði...

Allar vitsmunaverur vilja horfa á Sýn enda bjóða þeir upp á heilbrigt og uppbyggilegt sjónvarpsefni. Því miður reynist það vera allt allt of dýrt:/