fimmtudagur, janúar 24, 2008

157 dagar

(Fyrirsögnin er tengill)

Jæja, núna unnum við leik á EM en í þetta skiptið vann ég líklegast ekkert. Um leið og ég fékk að vita að ég vann eftir Þjóðverjaleikinn þá fékk ég að skjóta á úrslit Ungverjaleiksins og ég skaut á 30-28 fyrir Ísland. Hins vegar unnum við 36-28 og eflaust margir sem voru nær réttum úrslitum heldur en ég.


Svona verður stemmarinn á kvöldin á stóra sviðinu

Í dag eru 157 dagar í Roskilde hátíðina (það stendur á heimasíðunni - ég taldi ekki:) ). Við ætlum að fara saman fjórar systur af sex, búnar að kaupa fjóra flugmiða og þrjá hátíðarpassa...sumir eiga eftir að kaupa sumt;) Það eru bara tvö bönd búin að melda sig, Radiohead og Chemical Brothers. Ég þekki bræðurna mjög lítið en Radiohead hef ég séð tvisvar sinnum áður í New York og get ekki beðið eftir að sjá þá aftur!

kvk

p.s. útlitið á síðunni á væntanlega eftir að breytast hægt og rólega, er að fikra mig áfram í þessu:)

Engin ummæli: