mánudagur, ágúst 11, 2008

stolt fjölskylda

þetta var náttúrlega geðveikur dagur og reyndar geðveik nótt líka.

atriðið okkar heppnaðist mjög vel, þótt tónlistin hefði mátt vera háværari. punktur fyrir næstu göngu. ef. veðrið var líka fullkomið. það er alltaf gaman að fara á gay pride en það er margfalt skemmtilegra að taka þátt. ég var reyndar í smá stressi í fyrri hlutanum en náði svo að njóta göngunnar betur í seinni hlutanum. á arnarhóli fékk ég svo vægt spennufall. þreytt eftir síðustu daga, mikið stress síðasta klukkutímann fyrir gönguna, svefnlitla nótt og hafði ekkert borðað. ég var á mörkunum að sofna í brekkunni og ég er ekki að ýkja. en það var bara allt í lagi og alveg þess virði.

við fórum svo með orra og þorsteini á rossopomodoro áður en við fórum heim. þá var ég komin á það stig að þurfa tannstöngla til að halda augnlokunum uppi. ég þorði ekki að leggja mig, því þá hefði ég ekki vaknað aftur það kvöldið. eina ráðið var því að fá sér bjór og heppnaðist sú aðferð mjög vel. bára kom svo og sótti mig og við rukum í partý til bjóru og ísu. þar vorum við í góðum fíling áður en við skelltum okkur aftur á organ. staðurinn var reyndar tómur og tónlistin ekki að gera sig en úti sat hópur af fjörugum konum sem við þekktum og við tylltum okkur hjá þeim og skemmtum okkur konunglega til kl. 3. þaðan fórum við svo yfir á english pub þar sem við sáum seinni hálfleikinn af rússaleiknum á ól. staðurinn var pakkaður og stemmningin geðveik, mikil innlifun í mannskapnum. ótrúlega mikið fjör. að lokum fengum við okkur nonna og ég var komin heim klukkan 6. þreytt? nei aldrei. föstudagsjammið var mjög skemmtilegt en laugardagsjammið var svo miklu miklu miklu skemmtilegra! takk takk takk stelpur, jú rokk:)

ég er með teljara hérna á síðunni sem sýnir mér mjög fjölbreytta tölfræði. hann sýnir mér t.d. í hvaða landi lesendur síðunnar eru staddir þegar þeir fara inn á hana. fólk er flest allt á íslandi, nema um daginn þegar hún var lesin í danmörku og komst ég að því hver það var en núna er einhver að lesa síðuna frá bandaríkjunum og ég verð að viðurkenna að ég er að DEYJA ÚR FORVITNI! plís þú, viltu segja mér hver þú ert??

svo væri gaman að fá smá gay pride komment frá ykkur. hvernig var? sáuði atriðið okkar? bara eitthvað:)

kolla...sem hefði viljað hafa 9. ágúst helmingi lengri.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bleeeessuð :)

Ég er búin að vera að bíða eftir viðtalinu við ykkur fjölskylduna í Kastljósinu en ekki séð það hmmm. Átti það ekki að vera í síðustu viku ?

Eníveis, af því þú baðst um Gay-Pride comment þá misstum við af göngunni í ár :Z en Jules and I mættum á ballið á Nasa í staðinn :)

Bið að heilsa Steinsen.

Kv. Sólfríður

Nafnlaus sagði...

Við bíðum líka eftir viðtalinu, kemur vonandi fyrir jól!!!

kv. Steinsen