sunnudagur, júní 08, 2008

íþróttaveisla

var að horfa á íslenska handboltalandsliðið niðurlægt í makedóníu. þeir voru skelfilega slakir og möguleikarnir á að komast á hm í króatíu eru nánast úr sögunni. þetta er ekki búið spil en að ætla sér að vinna makedóna með níu mörkum eða meira er mikil bjartsýni. ég myndi fara í höllina á sunnudaginn á seinni leikinn ef það kostaði ekki 2500 kr, en vonandi fyllum við höllina og vinnum með níu mörkum.

em er núna byrjað og heldur áfram næstu vikur. algjör fótboltaveisla og gera má ráð fyrir að allir leikirnir verði spennandi, a.m.k. eftir að ég sá austurríki í dag. ég hélt að þeir væru miklu verri en þeir reyndust vera. eins og á öllum stórmótum síðan 1990 þá held ég með svíum og ítölum. ég hef alltaf haft bilandi trú á henke og co og þeir hafa yfirleitt staðið undir væntingum, stundum öllum að óvörum. en í þetta skiptið held ég að þeir klikki...ég vona auðvitað ekki, en eitthvað segir mér að þeir komist ekki upp úr riðlakeppninni. ég spái svo þjóðverjum titlinum en þeir eru með massa gott lið. ég vil líka sjá spánverja ná langt og spurning hvort þeir geri betur en í síðustu stórkeppnum.

mamma fór til njú jork í dag. ég öfunda hana. hún kemur heim eftir tvær vikur og fer reyndar líka til arúba til að sóla sig og spila golf. ég öfunda hana.

fórum í fertugsafmæli til annýjar í gær, en hún spilar með okkur blak í hamri. þar sungum við skemmtilegt lag handa henni eins og hamarsfólk er vant að gera í öllum afmælum og brúðkaupum liðsfélaganna. þessi félagsskapur klikkar aldrei og við sátum og sötruðum íþróttadrykki til hálf þrjú um nóttina og spjölluðum og hlógum. má eiginlega segja að aðalumræðuefnið hafi verið daður og pólitík...skemmtileg blanda...en auðvitað var rætt um margt annað líka.

mig langar til njú jork.

var ég búin að segja ykkur að mig langar til njú jork?

kolla...sem langar til njú jork

Engin ummæli: