sunnudagur, febrúar 24, 2008

Irlande Douze Pointe

Ef þið smellið á fyrirsögnina þá sjáið þið framlag Íra til Júróvisjón....ég segi bara Silvía Nótt hver?? Þetta er eflaust okkar eina von til að fá Evrópubúa til að gleyma henni, ef þeir hafa ekki gert það nú þegar:)

Ég er sátt með kvöldið í gær og úrslitin. Ég endaði á því að kjósa Eurobandið eftir að hafa hlustað vandræðalega á hryllilega falska söngkonu Mercedes Club! Þeir töpuðu á því að hafa ekki skipt henni út fyrir einhverja aðra. Mér finnst This is your life mjög gott og eins og ég sagði áður þá elska ég þessi hefðbundnu Júróvisjónlög og þetta er klárlega eitt af þeim:) Ég held hins vegar ekkert endilega að þau geri einhverjar rósir í lokakeppninni en ég er líka löngu hætt að gera mér vonir um það og mér er í rauninni alveg sama hvort við komumst áfram úr undankeppninni eða ekki, mér finnst lokakeppnin alltaf jafn skemmtileg (en það væri auðvitað ekki leiðinlegt að hafa Ísland með í úrslitunum - er bara ekki að pirra mig á því eins og sumir gera).


kvk

p.s. Til hamingju konur með daginn í dag!

Engin ummæli: