Þessi nýja bloggsyrpa mín byrjar aldeilis ekki vel! Síðan ég bloggaði síðast hafa verið mikið um veikindi á heimilinu og á morgun byrjar væntanlega gamla lífið aftur:)
Manni er ekki óhætt að skreppa á klósettið lengur! Ég skrapp áðan á klósettið til að gera "númer tvö" og þegar ég kom til baka (ekki svo rosalega löngu síðar...) kallaði Steinunn: "Það er kominn nýr borgarstjóri! Það er kominn nýr Borgarstjóri!!" Jæja, ég held að mér sé óhætt að segja að við (í Rvík) búum í Sirkusborg með meiru. Sama hvar við stöndum í pólitík þá hljótum við að vera sammála, er þagi krakkar??
Já, svo er það handboltinn. Á ég eitthvað að blogga um hann? Ég er alltaf bjartsýn fyrir hönd Íslands og tel okkur geta unnið alla þótt líkurnar séu ekki alltaf okkur í hag, við byrjum bara á því að vinna Þjóðverja á morgun og þá verðum við óstöðvandi!!
Ég ætla mér að blogga reglulega þannig að endilega kíkið inn reglulega:):)
kvk
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)



2 ummæli:
Ertu kannski að gefa í skyna að það sé best að búa í Mosó?
Það voru þín orð;)
Skrifa ummæli