þriðjudagur, janúar 22, 2008

Góð hugmynd

Ég er að spá í að raka saman ágætu fólki, fólki sem er tilbúið að mynda nýjan borgarmeirihluta með mér. Það eru allir falir fyrir rétt verð og með réttri beitu...var t.d. að spá í að bjóða Ingu Rut frænku að vera borgarstýra í einn og hálfan sólarhring, bara af því að hún var sú fyrsta að kommenta á nýja bloggið mitt:), síðan fengi ég kannski nokkur frændsystkin í viðbót svo við gætum stofnað Frændsystkinaflokkinn! Svo til að hafa smá spennu þá gætum við fengið einhvern einn utanaðkomandi vitleysing með í samstarfið svo það myndi hanga á bláþræði...vá þetta getur ekki klikkað! En svo þegar Inga Rut væri búin að fá útrás sem borgarstýra þá væri röðin komin að mér...út kjörtímabilið sko:)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá ég er sko alveg til í þetta, mundi fíla mig í að fá að stjórna soldið! Ekki það að ég sé stjórnsöm;)

Nafnlaus sagði...

Og hver er þessi vitleysingur? Kannski OÞB?

Nafnlaus sagði...

Heyrðu já!! Við getum stundum verið svo hrikalega ósammála Orri minn...þú ert ráðinn:):)