þriðjudagur, janúar 29, 2008

Auglýsing

Ég auglýsi eftir einhverjum til að skemmta sér með mér á laugardags- eða sunnudagsmorgnum. Viðkomandi (geta verið 1-3, fyrir utan mig) þurfa að hafa áhuga á að spila annaðhvort körfubolta eða badminton í góðum félagsskap.




Sjálf hef ég mikinn áhuga (og mikið keppnisskap!) og væri gaman að gera þetta að vikulegum viðburði í vetur.

Það kæmi einnig til greina að skella sér í tennis sem er ekki síðri íþrótt en hinar tvær. Annar möguleiki væri að prófa þetta allt saman!



Áhugasamar og samir vinsamlegast hafi samband sem fyrst.

kvk

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegar myndir!!
Ég sé að badmintonmyndin er af mér þar sem ég blanda smá blaktöktum í "movið". Dríf mig með þér þegar ég treysti mér í aðra dýfu.

Nafnlaus sagði...

Já þetta hljómar nokkuð spennandi hjá þér, þeas badmintonið! Veit samt ekki hvernig virkar að vera með slitið krossband í badmintoni ef maður er bara með spelku - veistu það??

Kolla sagði...

Það þarf bara að láta á það reyna:)